Hinseginfélag FG hefur sent fréttatilkynningu á fjölmiðla vegna bloggskrifa Páls Vilhjálmssonar, kennara við FG, um málefni hinseginfólks.
Tilkynninguna má lesa hér að neðan.
„Hinseginfélag FG vill í ljósi umræðunnar um bloggskrif Páls Vilhjálmssonar árétta að það að vera hinsegin, trans eða eitthvað annað fellur undir sjálfsögð og eðlileg mannréttindi. Rétturinn til tjáningar á kynvitund, kynhlutverkum og kynhneigð fellur einnig undir sömu réttindi.
Málfrelsi er líka mannréttindi en málfrelsið nær ekki yfir að meiða, smána eða valda öðrum sársauka og vanlíðan með opinberum skrifum. Slíkt getur brotið gegn grein númer 233 í almennum hegningarlögum.
Samkvæmt siðareglum Kennarasambands Íslands ber kennurum bæði að bera virðingu fyrir fjölbreytileika og að gæta að framkomu sinni á opinberum vettvangi.
Umræða um hinsegin málefni, málefni trans fólks og fleiri minnihlutahópa hér á landi virðist fylgja sama mynstri og víða erlendis á þann hátt að umburðarlyndi er að minnka og fordómar og hatursorðræða eru að aukast. Það er ótrúlega sorglegt.
Hinseginfélag FG hvetur til opinnar umræðu án fordóma og fyrirlitningar um málefni hinsegin, trans fólks og annarra hópa fólks. Slík umræða er leiðin til gagnkvæmrar virðingar og er um leið gæðastimpill á samfélagið. Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku samfélagi.“