fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Staða öryrkja – „Ég er 1,6 milljón í mínus, velti og velti til að kaupa mat og borga reikninga“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 8. júní 2023 18:00

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er 1,6 milljón í mínus. Velti og velti til að kaupa mat og borga reikninga (ekkert áfengi eða tóbak hér),“

segir einstæð fjögurra barna móðir og öryrki aðspurð um hversu mikið hún á eftir af örorkubótunum út mánuðinn þegar búið er að borga alla reikninga.

Svar móðurinnar er á meðal fjölmargra svara öryrkja við spurningu Kristínar Auðbjörnsdóttur stofnandi Instagramsíðunnar Lífið og líðan. Kristín sem er jafnframt móðir og háskólanemi segir að undanfarið hafi þar verið vakning um ýmis málefni, þá sérstaklega tengt andlegri og líkamlegri líðan frá ýmsum sjónarhornum, lífið almennt, án glansmyndar.

„Sjálf er ég í endurhæfingu, aðeins 35 ára gömul og það er stór biti að kyngja. Upp á síðkastið hafa verið að koma inn hinar ótrúlegustu umræður innan öryrkja samfélagsins og langar mig að fjalla um það stuttlega hér, ásamt því að deila nokkrum svörum öryrkja um það hver fjárhagsleg staða þeirra er á örorkubótum frá mánuði til mánaðar,“ segir Kristín í skoðanapistli á Vísi. 

Ekki mikill hvati fyrir öryrkja að safna eða afla fjár

Bendir Kristín á dæmi um eldri mann sem væri að safna fyrir viðhaldi á húsinu sínu. Upphæðin væri samtals í kringum 2,5 milljónir og því ekki hægt fyrir hann að fjármagna slíka upphæð á örorkubótum á skömmum tíma. Það er ekki í frásögu færandi nema fyrir það að vegna þess að hann á auka pening, fær hann á móti lægri bætur.

„Svona mætti lengi telja. Eins mega fjármagnstekjur einstaklinga á örorku ekki vera meiri en 100.000 á ári, þar með talið leigutekjur, nema bætur skerðist. Það er því ekki hægt að segja að almennt sé mikill hvati fyrir öryrkja til þess að leggja inn á sparnaðarreikinga né afla sér fjár,“ segir Kristín.

Beiðnum um fjárhagsaðstoð fjölgar

Verðlag í samfélaginu hækkar stöðugt og á sama tíma fjölgar færslum á samfélagsmiðlum þar sem óskað er eftir fjárhagsaðstoð. Kristín segist því hafa spurt sjálfa sig hver staða öryrkja, láglaunafólks, einstæðra foreldra og þeirra sem einhverra hluta vegna ná rétt upp í lágmarkslaun væri. Spurði hún því á síðunni Lífið og líðan eftirfarandi spurningar: 

Hvað eigið þið eftir af örorkubótunum ykkar út mánuðinn þegar búið er að borga alla reikninga?

Hér má sjá hluta af svörunum:

  1. Ég átti ekkert eftir núna en oft á ég kannski um 100.000 tops ef ég er heppin.
  2. Ekkert.
  3. Minna en 50 þúsund.
  4. Undir 80.000.
  5. Hjá mér er álagningin og endurgreiðsla til TR næstu mánuði.. Sumum okkar tekst að nurla saman á mörgum mánuðum smáræðis upphæðum, t.d. með því að neita sér um allt nema það lífsnauðsynlegasta. Ég legg til hliðar í hverjum mánuði ef ég mögulega get, helst ekki minna en 10 þúsund. Mér finnst ég rík ef ég enda með 50-60 þús í plús og ég er ein í heimili. Allt yfir það eru bara nánast auðævi.
  6. Er í sambúð með 2 lítil börn og ég á kannski um 50 þús eftir ef ég er heppin. Eitthvað svipað sem maðurinn minn á eftir en hann er á vinnumarkaði.
  7. Búin að vera í mínus í allan vetur, en kannski sérstakar aðstæður núna.
  8. Ekkert.
  9. Sirka 60 þús en ég er líka að borga reikninga til Síminn Pay og Aur því annars ætti ég ekki neitt inni í íbúðinni minni. Ég bý samt ekki einn svo matur og leiga er 50/50. Þarna á ég líka eftir að borga í mat svo peningurinn sem ég hef til að eyða í lyf eða annað er þá kannski um 20 þús.
  10. 40.000 eftir húsnæði og reikninga ef ég væri ein í heimili. Eins gott að maðurinn minn fari ekki frá mér.
  11. Ekkert!
  12. Sirka 50 þús.
  13. Mínus 30.000 þúsund.
  14. Er í mínus en fæ stuðning frá börnunum mínum.
  15. Þegar ég er búinn borga alla mína reikninga, þá á ég sirka 5-10.000kr eftir af tekjum frá TR og lífeyrissjóð samanlagt.
  16. 80.000.
  17. 54.000 þennan mánuðinn fyrst að það þurfti að borga skattinum.
  18. 70.000 eftir en er með ógreidda reikninga upp á 29.000 ennþá.
  19. Ég er 1,6 milljón í mínus. Velti og velti til að kaupa mat og borga reikninga (ekkert áfengi eða tóbak hér). Er ein með 4 börn.
  20. Er sem betur fer gift manni sem þénar nóg til að við getum framfleytt fjölskyldunni og leyft okkur smá auka. Ég gæti ekki lifað á bótum ef ég væri einstæð. Þið sem þurfið þess fáið alla mína samúð!

Segir Kristín að ljóst sé að ástandið sé mörgum erfitt, og eitthvað þurfi að gera í málinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Í gær

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu