Flugbjörgunarsveitin á Hellu var í gær, hvítasunnudag, boðuð út vegna bíla sem voru fastir í nágrenni Þórisvatns. Farið var á tveimur bílum og þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn kom í ljós að einn bíll var fastur á vaði í Köldukvísl. Bíllinn var dreginn á þurrt, og ákvað ökumaður í kjölfarið að snúa við til byggða.
Annar jeppi var fastur í aur þar skammt frá, og var sá bíll einnig dreginn upp. Þriðji bíllinn var í vandræðum á svæðinu, og þegar hann var orðinn laus, hélt björgunarsveitarfólk til byggða.
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi, Björg, var boðuð út rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi, til aðstoðar bát sem misst hafði vélarafl, skammt norðan Rifs. Vel gekk að koma taug á milli báta, og var sá aflausi dregin til hafnar á Rifi.