fbpx
Fimmtudagur 01.júní 2023
Fréttir

Sögulegt met þegar dúxinn Orri fékk hreina 10 í meðaleinkunn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 26. maí 2023 17:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sögulegt met var slegið í útskriftarathöfn Menntaskólans í Kópavogi þegar dúx skólans hlaut hreina 10 í meðaleinkunn. Dúxinn er Orri Þór Eggertsson sem var að ljúka námi við raungreinabraut sem og á afreksíþróttasviði skólans. Semidúx skólans var svo með þriðju hæstu einkunn í sögu skólans, eða 9,87 í meðaleinkunn.

Tera Rún Júlíusdóttir, nýsveinn í framreiðslu, var hæst nemenda verknáms með 9,13 í meðaleinkunn en hún sat annan og þriðja bekk samhliða á vorönn og því er árangurinn sérstaklega eftirtektaverður.

Við  hátíðina fór Guðríður Eldey Arnardóttir, skólameistari, yfir sögu skólans sem fagnar nú 50 ára afmæli og greindi frá auknum vinsældum náms við skólans og sagði félagslífið vera sterkt og námsframboðið vandað. Nemendur í verknámi á erlendum vettvangi hefðu náð glæsilegum árangri og skarað fram úr á heimsvísu.

Í tilkynningu frá MK segir:

„Skólameistari fór með ræðu Ingólfs A. Þorkelssonar sem hann flutti fyrsta útskriftarárgangi skólans árið 1977 en færði orðalag örlítið til nútímans.  Orð Ingólfs eiga jafnvel vel við í dag eins og þegar þau voru mælt fyrir 46 árum.  Þar sagði Ingólfur:  –

„Og mikil stórvirki hafa verið unnin á sviðum tækni og vísinda, ekki vantar það. En þrátt fyrir alla framvindu erum við fjær því en nokkru sinni að sjá öllum svöngum jarðarbörnum fyrir mat og sjálf vísindin hafa sýnt fram á það með óyggjandi rökum að heimurinn okkar, heimur tækni og vísinda er heimur á heljarþröm. Heimur sem fær ekki staðist nema mannkynið geri sér ljóst að gæði jarðarinnar eru ekki óþrotleg og að varnarbarátta framtíðarinnar verður að snúast um varðveislu lífvænlegs umhverfis og réttlæti, en ekki um taumlausan ágóða og aukinn hagvöxt einni þjóð til handa á meðan önnur líður skort“

„Baráttan fyrir betri heimi verður bæði löng og tvísýn. Í þeirri baráttu er þörf djarfra viðsýnna og drengilegra liðsmanna. Í þeirri baráttu er þörf fyrir ykkur.

Hafi seta ykkar í Menntaskólanum í Kópavogi hjálpað til að gera ykkur hæf til þeirrar baráttu hefur ekki verið stritað til einskis.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þórhallur hjólar í Jón fyrir að stela dagskrá Sýnar – „Fyrir góðmennskuna tekur hann háar fjárhæðir“

Þórhallur hjólar í Jón fyrir að stela dagskrá Sýnar – „Fyrir góðmennskuna tekur hann háar fjárhæðir“
Fréttir
Í gær

Friður á umdeildu svæði gæti verið slæm frétt fyrir Pútín og Rússland

Friður á umdeildu svæði gæti verið slæm frétt fyrir Pútín og Rússland
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir ummæli Medvedev sæta tíðindum

Segir ummæli Medvedev sæta tíðindum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísland hefur þátttöku í bridds á Norðurlandamóti

Ísland hefur þátttöku í bridds á Norðurlandamóti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sonur Helgu var sóttur með aðför á Barnaspítala Hringsins og þvingaður í umsjá föður síns – „Tilbúin að fórna öllu sem ég á til að bjarga börnunum mínum“ 

Sonur Helgu var sóttur með aðför á Barnaspítala Hringsins og þvingaður í umsjá föður síns – „Tilbúin að fórna öllu sem ég á til að bjarga börnunum mínum“ 
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur tónlistarmaður sætir lögreglurannsókn fyrir að hafa klæðst nasistabúningi á sviði

Heimsfrægur tónlistarmaður sætir lögreglurannsókn fyrir að hafa klæðst nasistabúningi á sviði