fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Útgáfu Fréttablaðsins hætt og útsendingar sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar stöðvast

Ritstjórn DV
Föstudaginn 31. mars 2023 10:38

Útgáfa Fréttablaðsins heyrir nú sögunni til

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá og með deginum í dag leggst útgáfa Fréttablaðsins af sem og útsendingar sjónvarpstöðvarinnar Hringbrautar. Í tilkynningu frá stjórn útgáfufélagsins Torgs ehf. kemur fram að reksturinn hafi verið þungur um langt skeið og nú sé komið að endastöð. Sérstaklega hafi kórónuveirufaraldurinn farið illa með reksturinn en von stjórnenda hafi staðið til um að ástandið myndi batna að því loknu en það hafi ekki raungerst.

Stjórnendur hafi þó  fulla trú á rekstri DV.is og tengdra miðla, vefmiðlinum hringbraut.is, en starfsemi þessarra miðla verður haldið áfram af fullum krafti auk þess sem upplýsingamiðlinum Iceland Magazine verður hleypt af stokkunum bráðlega.

Í tilkynningunni kemur fram allir starfsmenn fyrirtækisins hafi fengið greidd laun í morgun.

 

Eftirfarandi er yfirlýsing stjórnar útgáfufélagsins Torgs ehf.

„Ástæður þess að rekstur Fréttablaðsins gengur ekki upp eru margvíslegar. Að hluta til er um óheppni að ræða og að hluta er um að ræða óviðráðanlega þróun þar sem útgáfa fjölmiðla á pappír hefur látið hratt undan síga víða um heim, ekki síður en hér á landi. Stafrænir fjölmiðlar eru smám saman að taka yfir. Þá er rekstrarumhverfi einkarekinna miðla á Íslandi óboðlegt. Ekki er um annað að ræða en að horfast í augu við þessar staðreyndir. Allir ráðnir starfsmenn Torgs fengu greidd laun í dag.

Veiruvandinn sem herjaði á Íslendinga og heimsbyggðina alla árin 2020 til 2022 kom mjög illa við rekstur Fréttablaðsins og leiddi til taprekstrar. Auglýsingar drógust verulega saman þegar heilar atvinnugreinar og öflug fyrirtæki dróu saman starfsemi sína eða jafnvel lokuðu meðan fárið gekk yfir. Í faraldrinum var tekinn upp stuðningur við einkarekna miðla, sem var þakkarvert en dugði stærstu miðlunum skammt. Í framhaldi hafa stjórnvöld stutt fjárhagslega við starfsemi fjölmiðlanna en það framlag hefur dregist saman og ekki náð að halda í við verðlagsþróun. Markmið stjórnvalda með þessum stuðningi var að efla innlendan fréttaflutning og styðja og styrkja tungumálið.

Stjórnendur útgáfunnar mátu það svo að um tímabundinn vanda væri að ræða sem þyrfti að komast í gegnum þar til eðlilegt ástand kæmist á að nýju. Veirutímabilið reyndist hins vegar mun lengra en ætlað var og þegar því lauk í byrjun mars 2022, braust út stríð í Úkraínu sem hafði truflandi áhrif víða um heim og leiddi til aukins kostnaðar tengdum mikilvægum aðföngum.

Samhliða þessu varð æ ljósara að frídreifing Fréttablaðsins inn á heimili væri of kostnaðarsöm og fengi ekki staðist til frambúðar. Þess vegna var gerð sú tilraun að dreifa blaðinu á fjölfarna staði, svo sem í stórmarkaði, þjónustustöðvar olíufélaga og verslanamiðstöðvar, þar sem mikill fjöldi fólks á leið um. Þessi dreifing hefur tekist mjög vel en markaðurinn virðist ekki hafa haft næga trú á þessu fyrirkomulagi. Því verður ekki vikist undan því að láta staðar numið. Samhliða þessu verður útsendingum sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar hætt.
Við höfum á hinn bóginn fulla trú á rekstri DV.is og tengdra miðla, vefmiðlinum hringbraut.is, en starfsemi þessarra miðla verður haldið áfram af fullum krafti auk þess sem upplýsingamiðlinum Iceland Magazine verður hleypt af stokkunum bráðlega.
Fréttablaðið hefur komið út sem fríblað í nær 22 ár og verið mest lesna blaðið landins allan tímann. Það hljóta því að teljast nokkur tíðindi þegar blaðið hverfur nú af íslenskum fjölmiðlamarkaði. Margir hafa reyndar spáð því um árabil að þessi rekstur myndi ekki ganga upp vegna þróunar í fjölmiðlun þar sem vefmiðlar eru að taka yfir og eins vegna þess illvíga rekstrarumhverfist sem einkareknum fjölmiðlum er búið á Íslandi. Um árabil og reyndar í áratugi hafa stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar heitið því að færa fjölmiðlamarkaðinn yfir í sanngjarnt og eðlilegt horf með því að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði eins og tíðkast í nágrannalöndum og þykir sjálfsagt fyrirkomulag. Öll slík fyrirheit hafa verið svikin og ekkert bendir til að breyting verði á. Ríkisútvarpið fær sex milljarða króna af skattpeningum landsmanna í sinn hlut á hverju ári, auk þess sem honum líðst að soga til sín auglýsingafé í umtalsverðum mæli í samkeppni við einkareknu miðlana.

Að auki hefur vaxandi hluti auglýsingafjár ratað til erlendra samfélagsmiðla og streymisveitna án þess að þeir innheimti virðisaukaskatt af þeirri starfsemi sinni eða standa skil á sköttum og gjöldum í ríkissjóð eins og keppinautum þeirra er skylt. Þetta skekkir samkeppnisstöðuna verulega án þess að stjórnvöld hafi séð ástæður til að grípa inn í.

Vitanlega er mjög dapurleg niðurstaða sem hér er kynnt. En stjórnendur útgáfunnar hafa sannarlega leitað allra leiða til að finna henni viðunandi rekstrargrundvöll til framtíðar, en án árangurs. Stjórn félagsins harmar þessi málalok og þakkar þeim fjölmörgu starfsmönnum sem lagt hafa dag við nótt að treysta stoðir rekstrarins undanfarið og óskar þeim velfarnaðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“