fbpx
Föstudagur 09.júní 2023
Fréttir

Til stóð að rýma húsin sem urðu fyrir flóði en það tókst ekki í tæka tíð

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. mars 2023 11:45

Grófar útlínur flóðanna sem féllu í morgun miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir núna. Mynd/Veðurstofa Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áður en snjóflóð féllu á hús í Neskaupstað í morgun hafði verið tekin ákvörðun um að rýma þau en það tókst ekki í tæka tíð. Þetta kemur fram á vef RÚV en þar segir Magni Hreinn Jónsson, fagstjóri ofanflóða hjá Veðurstofu Íslands, að í ljósi þess verði að endurskoða verklag og ákvarðanatöku varðandi rýmingar.  „Rýming hefði náttúrulega þurft að gerast fyrr og við viljum ekki að það falli flóð á órýmd hús,“ sagði Magni í viðtali við fréttstofu. Fram hefur komið að Veðurstofan varaði við aukinni snjóflóðahættu í gær.

Sjá einnig: Neyðarstig almannavarna vegna snjóflóða í Neskaupstað – Snjóþyngsli gera viðbragðsaðilum erfitt fyrir

Eins og greint hefur verið frá féllu að minnsta kosti þrjú snjóflóð í Neskaupstað í morgun en eitt flóðanna lenti á húsum við Staramýri í bænum. Flóðið var blessunarlega ekki þykkt en féll á miklum hraða á húsin með þeim afleiðingum að gluggar brotnuðu og hurðir sprungu upp.

Mikil mildi þykir að engin alvarleg slys hafi orðið á fólki en í viðtali við RÚV lýsti Anna Björg Rúnarsdóttir Fjeldsted því hvernig snjór hefði rutt sér leið inn í íbúð fjölskyldunnar, sem telur fimm manns. Hún og tvö börn hennar sluppu án meiðsla en maður hennar og dóttir hlutu áverka sem hlúð var að á spítala bæjarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svarar ummælum Kára um vesalinga í sjómennsku fullum hálsi – „Örlög okkar að falla í gleymskunnar dá vegna aumingjaskapar“

Svarar ummælum Kára um vesalinga í sjómennsku fullum hálsi – „Örlög okkar að falla í gleymskunnar dá vegna aumingjaskapar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýjar tölur um tjón Rússa í stríðinu

Nýjar tölur um tjón Rússa í stríðinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vildi skila taflborði sem hann hafði keypt á 27 milljónir – Páll í Polaris mátaði andstæðing sinn í Héraðsdómi

Vildi skila taflborði sem hann hafði keypt á 27 milljónir – Páll í Polaris mátaði andstæðing sinn í Héraðsdómi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sendi eiginmanni ástkonunnar myndskeið af sér og henni í samförum

Sendi eiginmanni ástkonunnar myndskeið af sér og henni í samförum