Elva Dögg Sigþórsdóttir, sem búsett er á Akureyri, óraði varla fyrir að hún yrði fljótlega í lífshættu eftir að hafa leitað sér aðstoðar vegna tannpínu. Hún reyndist vera með sýkingu í tönn en sýkingin vatt upp á sig og leiddi til fjölkerfalíffærabilunar og ekki var talið öruggt að Elva Dögg myndi lifa af sjúkraflug til Reykjavíkur til að komast undir læknishendur.
Fréttablaðið greinir frá þessu og birtir viðtal við Elvu Dögg í blaði dagsins en í dag er ár liðið frá atburðinum.
Úr varð ein sérstæðasta lífsbjörg í sögu Landspítalans en hópur lækna gerði sér lítið fyrir og fór í sjúkraflug til Akureyrar með hjarta- og lungnadælu í farteskinu til að bjarga Elvu Dögg.
Í viðtali um málið segir Elva Dögg að um kraftaverk sé að ræða að hún sé á lífi og er afar þakklát læknavísindunum, jafnt sunnan heiða og norðan, svo og hugviti þeirra og snarræði, eins og segir í umfjöllun Fréttablaðsins.
Hún segist hafa endurheimt fyrri líkamlegan styrk eftir lífreynsluna erfiðu en það að svo litlu hafi munað sitji enn í henni andlega.
„Það er meira en að segja það að standa skyndilega svona nálægt dauðanum,“ segir hún.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni í Fréttablaðinu. Hægt er að nálgast blaðið víða í verslunum um land sem og í Fréttablaðs-appinu.