Ástæðan er að hann er nú sakaður um pólitískan metnað í kjölfar nýlegrar tilkynningar hans um að hann hyggist bjóða sig fram til embættis forseta Úkraínu á næsta ári.
Margir velta nú fyrir sér hvort hann hafi sagt Vladímír Pútín, forseta, frá þessum fyrirætlunum sínum.
Aleksei Mukhin, stjórnmálaskýrandi sem kemur oft fram í rússneskum ríkisfjölmiðlum, réðst á Prigozhin á Telegram þar sem hann skrifaði að Prigozhin hafi farið yfir línuna sem skilgreinir hvað sé ásættanlegt pólitískt séð í Rússlandi.
Þykir þetta benda til að Prigozhin sé fallinn í ónáð í Kreml.
Þrátt fyrir Prigozhin hafi líklega verið að grínast um forsetaframboðið að mati Mukhin, þá segir hann þetta ekki fyndið. Hann sagði að Internetið sé þannig að frásagnir af metnaði Prigozhin öðlist eigið líf og Rússar tengi þær við forsetakosningarnar í Rússlandi á næsta ári. Hann sagði að túlka megi ummælin sem merki um að Prigozhin hyggist skora Pútín á hólm í forsetakosningunum. „Afsakið mig, var búið að láta Vladímír Pútín vita af þessu?“ spurði hann.