fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

G. Andri segir ósannindum dreift um fyrirtæki hans – „Erfitt getur þarna reynst að bera hönd fyrir höfuð sér“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 1. mars 2023 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

G. Andri Bergmann, forstjóri Procure Home, segir að fyrirtæki hans hafi orðið fyrir villandi umfjöllun á samfélagsmiðlum. Erfitt geti reynst að verja sig þegar slíkt kemur upp. Þetta kemur fram í aðsendri á Vísir.is í gær.

Yfirskrift greinarinnar er „Þetta er ekki eðlileg hegðun“ en Andri segir Lúkasar-heilkennið vera sprelllifandi í umræðu af þessu tagi og vísar þar til mikils uppnáms sem varð í netheimum árið 2007 er sú flökkusaga fór á kreik að ungur maður hefði sparkað hund til ólífis á Akureyri en hundurinn reyndist síðan sprelllifandi:

„Á spjallborðum og facebook hópum sjáum við spjallara æ oftar koma fram í HÁSTÖFUM hvar hópfélagar eru beðnir að vara sig á þessu eða hinu fyrirtækinu. Já eða einstaklingnum. Svo fylgir einhliða frásögn, mistúlkaðar staðreyndir og stundum hreinn uppspuni.

Erfitt getur þarna reynst að bera hönd fyrir höfuð sér. Og sé það reynt ýfir það upp hegðun innan hópsins sem helst minnir á kúgun einræðisríkja hvar aðeins er leyfð skoðun sem er einræðisherranum þóknanleg. Í þessu tilviki þeim/þeirri sem upphaflega setur fram tilfinningaríkt hástafahróp um sniðgöngu.

Það má með réttu kalla þetta Lúkasar-heilkennið. Enda hér búið að rannsaka morðið, ákveða morðingjann, dæma og fleyta kertum.

Allt þó hundurinn sé sprell-lifandi.“

Andri segir að gagnrýni eigi rétt á sér en opinber smánun eigi ekkert skylt við gagnrýni:

„Fyrir­tæki mitt varð fyrir árás í stórum spjall­hóp á Face­book. Við­skipta­vinur VARAÐI VIÐ FYRIR­TÆKINU í há­stöfum og sagði farir sínar ekki sléttar. Hún fór þó í öllum megin­at­riðum á skjön við sann­leikann og hag­ræddi at­vikum á þann hátt að ætla mætti að við hefðum myrt hund. Í en­feldni minni fór ég inn í um­ræðuna, leið­rétti að­dróttanir og varði mig og mitt. En ég var um­svifa­laust tjargaður, velt upp úr fiðri og vísað úr hænsna­húsinu.“

Andri segir að í þessum umræðum hafi sannleikurinn ekki skipt neinu máli heldur hafi þarna farið fram keppni í að rægja hann og fyrirtækið sem mest. Þetta segir hann vera langt frá því einsdæmi og hann telur að samfélagið þurfi að snúast gegn nethegðun af þessu tagi:

„Ég og fyrir­tæki mitt erum ekkert eins­dæmi og er nú svo komið í sam­fé­lagi okkar að nóg er að koma fram með ó­rök­studdar dylgjur á hendur fólki eða fyrir­tækjum. Lífs­viður­væri er rakkað niður og fólk smánað ef það er eða ætlar sér í við­skipti eða á tón­leika. Minna metnir fjöl­miðlar á smella­veiðum gera sér svo mat úr öllu saman, hjarð­hegðunin fær viður­kenningu og vélin mallar á­fram full vand­lætingar.“

„Við hljótum að sjá að þetta er ekki eðli­leg hegðun og við sem sam­fé­lag verðum að snúa við blaðinu áður en það verður of seint. Við verðum að losna undan þessu hatri sem ein­kennir alla um­ræðu á sam­fé­lags­miðlum. Við verðum að losna undan þessari pólariseringu og við verðum að gera þá kröfu til ríkis­styrktra fjöl­miðla að þeir leiði þessar breytingar.“

Sjá grein G.Andra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni