fbpx
Þriðjudagur 28.mars 2023
Fréttir

Söfnun vegna andláts Sigfúsar – „Væri afskaplega þakklát þeim sem sjá sér fært um að hjálpa“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 1. febrúar 2023 21:00

Systkinin Kolbrún Rósa og Sigfús Valgeir á góðri stundu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigfús Valgeir Ómarsson varð bráðkvaddur 26. janúar, hann var 44 ára gamall, fæddur 7. nóvember 1978. Útför Sigfúsar fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 7. febrúar kl. 13.

Kolbrún Rósa Valsdóttir, yngri systir Sigfúsar, hefur stofnað styrktarreikning fyrir hönd fjölskyldunnar til þess að standa straum af útfararkostnaði.

Í samtali við DV segir Kolbrún Rósa bróður sinn hafa verið virkilega duglegan og hjálpsaman. „Hann var mikill húmoristi. Það var alltaf svo stutt í hlátur og gleði.“

Segist Kolbrún Rósa vera þakklát fyrir þann tíma sem hún fékk með bróður sínum.

„Bróðir minn var sjómaður, en þeir eru með mjög stífar reglur fyrir útfararstyrk og hann á ekki rétt á útfararstyrk þar, en við fáum styrk frá Reykjavíkurborg sem greiddur er beint til útfararþjónustunnar. Ég er búin að vera frá vinnu í eitt og hálft ár með lítið barn og öll hjálp væri vel þegin,“ segir Kolbrún Rósa. „Ég væri afskaplega þakklát þeim sem sjá sér fært um að hjálpa.“

Söfnunarreikningurinn er á nafni og kennitölu Kolbrúnar Rósu.
Reikningsupplýsingarnar eru hér að neðan og minnt er á að við margt smátt gerir eitt stórt.

Kennitala: 031189-3069
Reikningsupplýsingar: 0537-14-402466

Einnig má leggja inn á reikning útfararstofunnar.
Skýring þarf að vera / vegna útfarar Sigfúsar.

Kennitala:63029-01559
Reikningsupplýsingar: 113-26-00010

„Ef safnast meira en útfararkostnaði nemur þá mun sú upphæð renna til Frú Ragnheiðar,“ segir Kolbrún Rósa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Til stóð að rýma húsin sem urðu fyrir flóði en það tókst ekki í tæka tíð

Til stóð að rýma húsin sem urðu fyrir flóði en það tókst ekki í tæka tíð
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Móðir sýknuð í líkamsárásarmáli gegn fimm ára syni sínum – Sögð hafa sparkað í búk drengsins

Móðir sýknuð í líkamsárásarmáli gegn fimm ára syni sínum – Sögð hafa sparkað í búk drengsins
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjársvikari framseldur úr landi – Kom til Íslands árið 2014 og dvaldist hér með unnustu og syni

Fjársvikari framseldur úr landi – Kom til Íslands árið 2014 og dvaldist hér með unnustu og syni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona sýknuð í skattsvikamáli MS Tækjaleigu

Kona sýknuð í skattsvikamáli MS Tækjaleigu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Medvedev segir að ef Pútín verði handtekinn jafngildi það stríðsyfirlýsingu

Medvedev segir að ef Pútín verði handtekinn jafngildi það stríðsyfirlýsingu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Edda biðst velvirðingar á missögnum varðandi starfsferil sinn

Edda biðst velvirðingar á missögnum varðandi starfsferil sinn