fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Segir Strætó hafa hagnast um meira en milljarð á lögbrotum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. desember 2023 21:30

Mynd: Ernir Eyjólfsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Allrahanda ehf, segir að Strætó bs hafi sparað sér 1.100 milljónir króna með því að taka ólögmætu útboði í Strætóakstur. Skaðabætur sem félagið hafi verið dæmt til að greiða vegna þessa falli á skattgreiðendur. Í aðsendri grein á Vísir.is segir Þórir:

„Á sex árum, frá 2010 til 2015, sparaði Strætó bs sér 1.100 milljónir króna, framreiknað til verðlags í dag, með því að taka ólögmætu tilboði í strætóakstur.

Í tveimur aðskildum dómsmálum hefur Strætó bs verið gert að greiða skaðabætur vegna þessa lögbrots. Með vöxtum nema bæturnar um 600 milljónum króna.

Fljótt á litið mætti álykta að Strætó hafi hagnast um 700 milljónir króna eftir að skaðabætur og dráttarvextir hafa verið dregin frá. Svo er þó ekki. Eigendur Strætó – sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – borga bæturnar.

Strætó heldur því eftir öllum hagnaðinum af því að taka tilboði sem stóðst ekki kröfur í útboði árið 2010. Það eru umræddar 1.100 milljónir króna.“

Borgin samþykkir tæplega 200 milljóna króna aukaframlag

Stjórn Strætó óskaði nýlega eftir rúmlega 350 milljóna króna aukaframlagi frá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu vegna dóms í skaðabótamáli sem Landsréttur staðfesti nýlega. Málið snýst um þá ákvörðun Strætó að taka tilboði fjögurra fyrirtækja í strætisvagnaakstur árið 2009. Síðar kom í ljós að einn aðilinn, Hagvagnar hf, uppfyllti ekki kröfur forvals og útboðs Strætó. Vegna þessa hefur Strætó verið dæmt til að greiða rútufyrirtækinu Teiti Jónassyni samtals 351 milljón króna í skaðabætur og dráttarvexti.

Áður hafði Strætó verið dæmt til að greiða Allrahanda ehf 100 milljónir auk dráttarvaxta.

Sjá einnig: Útsvarsgreiðendur þurfa að borga á fjórða hundrað milljónir vegna klúðurs Strætó

Strætó hefur nú sent bréf á öll sveitarfélögin sex sem standa að rekstri félagsins og óskað þess að þessi kostnaður verði bættur upp með aukafjárframlögum. Reykjavíkurborg hefur þegar samþykkt að auka framlög til Strætó upp á 198.989.442 krónur. Málið er í athugun hjá hinum sveitarfélögunum.

Strætó hafi ekki einu sinni beðist afsökunar

Þórir segir ennfremur í áðurnefndri grein sinni á Vísir.is:

„Það borgar sig bersýnilega að brjóta lög um opinber innkaup, enda sjá dómstólar til þess að lögbrjótunum sé með engu móti refsað fyrir athæfið. Því síður að sú spilling sem réði athöfnum forráðamanna Strætó bs á sínum tíma hafi nokkrar afleiðingar. Helstu neikvæðu áhrifin er verulega skaddaður trúverðugleiki fyrirtækisins, sem sést á fækkun þeirra sem taka þátt í útboðum á strætóakstri.

Fyrirtækin sem töldu sig taka þátt í heiðarlegu útboði fá aðeins hluta af sínu tjóni bætt eftir tíu ára málarekstur. Skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu fá reikninginn fyrir skaðabótunum og dráttarvöxtunum.

Forráðamenn Strætó bs hafa ekki einu sinni séð sóma sinn í að biðjast afsökunar á athæfinu þrátt fyrir skýra niðurstöðu dómstóla.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Í gær

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“