

Ronen Bar er forstjóri Shin Bet sem er ein af leyniþjónustustofnunum Ísrael og sér m.a. um njósnir innanlands og á herteknu svæðunum. Hlutverk Shin Bet er einkum að fylgjast með og tryggja öryggi innanlands í Ísrael. Bar skrifaði Antonio Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, langt bréf í síðasta mánuði. Í bréfinu segir Bar að Ísrael ætli sér að ná markmiðum sínum með yfirstandandi aðgerðum á Gaza og að þeir sem vilji öruggari heim ættu ekki að skipta sér af þessu eða gera tilraunir til að stöðva Ísraela.
Þetta kemur fram í umfjöllun Jerusalem Post.
Í bréfinu segir Bar að Hamas brjóti gegn stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta hafi samtökin gert allan þann tíma sem þau hafi stjórnað á Gaza. Þau hunsi orð stofnsáttmálans um áherslu á mannlega reisn og mikilvægi mannslífa og jafnrétti milli karla og kvenna. Samtökin hafi sömuleiðis hunsað þarfir íbúa Gaza.
Bar bætir því við í bréfinu að Hamas hafi gengið enn lengra við að brjóta stofnsáttmálann með árás sinni 7. október. Hann segir Sameinuðu þjóðirnar hafa verið stofnaðar til að tryggja að slíkt gæti ekki gerst en 7. október hafi Gyðingar verið myrtir á grimmilegan hátt fyrir það eitt að vera Gyðingar. Ísraelski herinn hagi sér ekki með slíkum hætti. Hann ráðist ekki viljandi á almenna borgara. Hamas hafi hins vegar neytt Ísrael til árása í borg þar sem fjöldi Palestínumanna býr.
Í bréfinu biður Bar Guterres um hjálp við að knésetja Hamas. Þetta segir hann nauðsynlegt til að sýna þeim þúsundum sem þegar hafa látist virðingu og til að bjarga mannslífum í framtíðinni. Einnig til að endurreisa trú á áherslur stofnskrárinnar á mannréttindi og mannlega reisn.
Bar segist í bréfinu hafa mætt fyrir nokkrum mánuðum til fundar við Guterres í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna en aðalritarinn hafi ekki mætt en sent Asha-Rose Migiro næstráðanda sinn í staðinn. Bar segist hafa lýst spennuþrungnu ástandi í Líbanon, Gaza og á Vesturbakkanum fyrir Migiro. Hann segist á fundinum hafa lagt áherslu á að átök gætu auðveldlega brotist út og endað sem stríð á heimsvísu.
Bar segist hafa beðið um að Sameinuðu þjóðarinnar gerðu það sem mögulegt væri til að auka stöðugleika þar á meðal að reyna að stöðva flutninga á vopnum til Gaza.
Beiðni sín hafi hins vegar verið hunsuð og það sem Ísraelar hafi óttast hafi orðið að veruleika. Því næst gagnrýnir Bar Guterres harðlega fyrir að segja bæði Hamas og Ísrael hafa framið stríðsglæpi. Hann segir ekki hægt að setja sama sem merki á milli þess að Hamas hafi myrt börn og þeirra óheppilegu en nauðsynlegu þjáninga sem að almennir borgarar, sem Hamas noti sem skildi, hafi þurft að þola.
Bar segir að 7. október hafi Hamas framið viðbjóðslega glæpi gegn mannkyni. Þeir sem framið hafi þessa glæpi geti ekki talist vera mennskir.
Hann segir átökin milli Ísraels og Hamas snúast um baráttu milli góðs og ills. Ísrael sé að verja hinn frjálsa heim og mennskuna gegn villimennsku.
Í umfjöllun Jerusalem Post segir að bréfið sé til vitnis um vaxandi reiði Ísraela vegna skorts á fordæmingu heimsbyggðarinnar á árás Hamas 7. október og vaxandi fordæmingu á þjáningum Palestínumanna á Gaza.
Ísraelar vísa einnig til þeirra orða forseta nokkurra af virtustu háskólum Bandaríkjanna um að áköll um þjóðarmorð á Gyðingum brjóti ekki reglur viðkomandi skóla. Sömuleiðis er vísað til lítilla viðbragða Sameinuðu þjóðanna og margra samtaka kvenna við nauðgunum, morðum og öðru ofbeldi sem Hamas liðar hafa beitt gegn ísraelskum konum.