Unnar hefur rætt opinskátt um afbrotasögu sína og kom meðal annars fram í þætti Jóns Ársæls Þórðarsonar, Paradísarheimt, sem sýndur var árið 2018.
Unnar var dæmdur fyrir þó nokkuð mörg brot samkvæmt dómi héraðsdóms sem féll þann 19. október síðastliðinn. Hann var ákærður fyrir tvö innbrot með skömmu millibili í júlí 2021, annars vegar í Thorvaldsensstræti í Reykjavík þar sem hann stal verkfærum og hins vegar í apótek í Kópavogi þar sem hann stal lyfjum og peningum.
Rétt fyrir jólin 2021 var hann svo stöðvaður við Grindavíkurveg þar sem hann ók bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna.
Vorið 2022 braust hann í verslun Bakó Ísberg þar sem hann stal fartölvu og Apple-símahleðslutæki. Hann stal svo bifreið í september 2022 og ók henni undir áhrifum fíkniefna.
Tveimur dögum síðar fór hann inn í fjóra strætisvagna við Hestháls í Reykjavík þar sem hann stal ýmsum verðmætum, til dæmis fartölvu, spjaldtölvu, fatnaði. Þá braut hann upp peningakassa í öllum fjórum vögnunum og hafði rúmar tvö þúsund krónur upp úr krafsinu.
Unnar var svo ákærður fyrir fleiri sambærileg brot en hann játaði sök þegar málið var tekið fyrir.
Unnar var síðast dæmdur í 3 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness árið 2015 fyrir þjófnað, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Hann lauk afplánun vegna dómsins árið 2021 en í dómi héraðsdóms kemur fram að ítrekunaráhrif vegna dómsins séu ekki fallin niður.
Unnar lýsti lífi sínu í Paradísarheimt þar sem fram kom að afbrotaferillinn hafi byrjað þegar hann var sex ára með innbrotum í dúfnakofa. Hann var fyrst dæmdur í fangelsi átján ára og hefur hann setið í fangelsi stóran hluta ævi sinnar, eða um tuttugu ár samtals.
Í Paradísarheimt kom fram að Unnar væri vinsæll meðal samfanga; léttur og dagfarsprúður en neyslan hafi farið illa með hann. Hann ólst upp á heimili þar sem var nokkuð um drykkju og viðurkenndi hann í þættinum að hann hefði stundum verið með kvíðahnút í maganum um helgar. Sjálfur tók hann fyrsta sopann sex eða sjö ára.
Þó Sigurður hafi dvalið langdvölum í fangelsi hefur hann reynt – og tekist – að flýja. Hann sagaði einu sinni rimlana á Litla-Hrauni ásamt öðrum fanga og strauk. Hann gaf sig fram tveimur dögum síðar að beiðni fjölskyldu sinnar. Þá rifjaði hann upp í þættinum að hann hafi ásamt nokkrum öðrum strokið af Skólavörðustígnum.
„Við fórum sex eða sjö og það var ævintýri sko. Það var bara eltingarleikur út um allt. Við náðumst á Reykjavíkurflugvelli á leiðinni til Færeyja, snarruglaðir,“ sagði hann.