fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Kjartan fengið nóg af yfirganginum: „Leikurinn er ójafn, ef leik skal kalla“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 18. október 2023 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan H. Ágústsson, bóndi og kennari í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, segist vera einn þeirra íbúa á svæðinu sem kominn er með nóg af „yfirgangi og virðingarleysi“ ákveðinna afla gagnvart náttúrunni, lýðræðinu og faglegum vinnubrögðum.

Kjartan skrifar grein á vef Vísis þar sem hann gagnrýnir Landsvirkjun harðlega og segir hana hafa haldið íbúum á svæðinu í gíslingu með yfirvofandi virkjunum í neðri hluta Þjórsár árum saman.

„Við sem efumst um ágæti þessara virkjana höfum kallað eins og hrópandi í eyðimörk. Leikurinn er ójafn, ef leik skal kalla. Landsvirkjun hefur heilu verkfræðistofurnar á launum og hóp lögfræðinga og ýmiss konar sérfræðinga. Við borgum. Við vinnum okkar baráttu kauplaust og í stopulum frítímum. Hvorki hefur verið hlustað á okkur né málsmetandi sérfræðinga t.d. vegna laxastofnsins í Þjórsá. Hjá Landsvirkjun er bara hlustað á það sem hentar. Gallinn er bara sá að það hentar hvorki okkur né náttúru og lífríki,“ segir Kjartan meðal annars.

Hann er afar mótfallinn framkvæmdum við Hvammsvirkjun sem hafa verið í bígerð lengi, en virkjuninni er ætlað að nýta fall Þjórsár neðan Búrfellsvirkjunar í Þjórsárdal.

„Gleymum ekki að Hvammsvirkjun og aðrar virkjanir í neðri hluta Þjórsár yrðu í byggð, m.a. s. blómlegri byggð. Virkjunin, eins og aðrar virkjanir á svæðinu, eru á virku gosbelti og því umtalsvert meiri líkur á jarðskjálftum, eldgosum og flóðum á þessu svæði en á flestum öðrum virkjanasvæðum. Stór hluti orkuframleiðslu landsmanna er því á virku flóða- og jarðskjálftasvæði. Fleiri virkjanir á þessu hættusvæði ættu ekki að vera inni í myndinni og allra síst í byggð. Það yrðu mistök fyrir náttúru, umhverfi, lífríki og mannlíf samfélagsins,“ segir hann í greininni.

Hann fer ekki ofan af því að verði Hvammsvirkjun að veruleika sé lífríki Þjórsár stefnt í voða og einstöku umhverfi og mörgum náttúruperlum fórnað. Hann veltir líka fyrir sér hvort orkuþörfin sé eins mikil og orkufyrirtæki og hagsmunaaðilar vilja vera láta og segir að við þurfum að hætta að haga okkur eins og við eigum margar ónotaðar jarðir til vara.

„Við höfum verið að misnota náttúru og umhverfi um alllangt skeið. Orkuskipti eru göfugt markmið en við megum ekki einblína á virkjanir í því skyni. Við þurfum öll að slaka á. Spyrjum okkur hvort við getum komist af með minna, t.d. færri utanlandsferðir, færri bíla og að minnka almenna neyslu. Róum okkur aðeins, minnkum neysluna og nýtum betur en hættum að ganga á rétt náttúru og komandi kynslóða.“

Grein Kjartans í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks“

„Forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“
Fréttir
Í gær

Öskrin í konunni reyndust á „heldur jákvæðari nótum“ en óttast var

Öskrin í konunni reyndust á „heldur jákvæðari nótum“ en óttast var
Fréttir
Í gær

Zelenskyy segir að hægt sé að senda erlendar hersveitir til Úkraínu áður en af NATÓ-aðild verður

Zelenskyy segir að hægt sé að senda erlendar hersveitir til Úkraínu áður en af NATÓ-aðild verður
Fréttir
Í gær

Ákeyrsla á bílastæði eyðilagði framtíðina sem hún stefndi að

Ákeyrsla á bílastæði eyðilagði framtíðina sem hún stefndi að
Fréttir
Í gær

Sigurður Fannar ákærður fyrir morð á dóttur sinni

Sigurður Fannar ákærður fyrir morð á dóttur sinni