fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Fordæma atvikið á Hótel Örk: „Þetta ömurlega háttalag á sér enga hliðstæðu“

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 18. október 2023 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Leiðsagnar – Félags leiðsögumanna fordæmir atvik það sem átti sér stað nýverið stað á Hótel Örk þar sem leiðsögukona sló ungmenni sem var hér á ferð á Íslandi ásamt hópi skólafélaga frá Bretlandi.

DV fjallaði um atvikið á mánudag en um var að ræða hópferð bresks kvennaskóla, Harris Girls Academy, til Íslands. Hópurinn kom heim til Bretlands á laugardag og greindi breska blaðið Mirror frá atvikinu á mánudag.

Í myndbandinu sást fullorðin hvít manneskja löðrunga ungan hörundsdökkan nemanda. Móðir stúlkunnar sem var slegin lýsti atvikinu í samtali við breska fjölmiðla.

Sagði hún að löðrungurinn hafi átt sér stað eftir að dóttir hennar kom vinkonu sinni til varna er fararstjórinn öskraði á hana.

„Dóttir mín bað hana kurteisislega að slaka á og þá var hún slegin. Ef barnið mitt væri hvítt þá held ég að þetta hefði ekki gerst. Fararstjórinn sló ekki vinkonu dóttur minnar, sem er hvít, eða einu sinni slegið í átt að henni. En henni fannst í lagi að slá barnið mitt. Þetta er raunveruleikinn sem við búum við. Svart fólk nýtur ekki virðingar, það er ekki talið hafa gildi og er ekki samþykkt.“

Í ályktun leiðsagnar er hörðum orðum farið um atvikið.

„Þetta ömurlega háttalag á sér enga hliðstæðu meðal leiðsögumanna hérlendis,“ segir meðal annars auk þess sem vísað er í siðareglur leiðsögumanna þar sem fram kemur að leiðsögumaður taki ekki undir nokkrum kringumstæðum þátt í áreitni, einelti eða ofbeldi af neinu tagi.

„Augljóst er að atvik þetta stríðir alfarið gegn siðareglum félagsins og er að mati stjórnar lögreglumál fyrst og fremst.   

Það er von stjórnar Leiðsagnar að hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu, hérlendis sem og erlendis átti sig á að hér er um vítavert háttalag að ræða sem á engan hátt endurspeglar þá faglegu og vingjarnlegu þjónustu sem leiðsögumenn hérlendis eru þekktir fyrir.   

Stjórn sendir öllum í Harris Girls Academy Bromley í New Beckenham hlýjar kveðjur og vonast til að stúlkan sem fyrir árásinni varð jafni sig fljótlega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra

Grindvíkingar hentu 327 tonnum meira af sorpi í sumar en í fyrra
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Í gær

Dómur yfir manni sem varð konu sinni að bana á Akureyri veldur ólgu – „Það er allt siðferðislega rangt við þessa nafnleynd“

Dómur yfir manni sem varð konu sinni að bana á Akureyri veldur ólgu – „Það er allt siðferðislega rangt við þessa nafnleynd“
Fréttir
Í gær

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks