fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Martröð fyrir utan Hagkaup í Skeifunni – Vignir og Kristófer frelsissviptu og rændu par

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 25. janúar 2023 10:16

Bandaríski ferðamaðurinn segir Hagkaup vera Walmart Íslands. Mynd: Ernir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir tróðu sér inn í aftursæti bíls fyrir utan Hagkaup í Skeifunni, misþyrmdu parinu í bílnum, frelssviptu þau og neyddu annað þeirra til að millifæra inn á sig 780 þúsund krónur. Vignir Þór Ólafsson, maður á 40. aldursári, og yngri maður, Kristófel Axel Smith Axelsson, fæddur 1998, hafa nú verið sakfelldir fyrir þetta brot, sem framið var þann 16. apríl árið 2020.

DV greindi frá málinu í september 2022. Mennirnir voru sakaðir um að hafa svipt parið frelsi sínu með því að setjast í aftursæti bíls þeirra er hún var kyrrstæð fyrir utan Hagkaup í Skeifunni. Ofbeldið stóð yfir í um klukkustund en brotinu er lýst svo í ákæru:

„Inni í bifreiðinni lögðu ákærðu hníf að hálsi þeirra, kýldu A í hægra gagnaugað og B eitt skipti í gagnaugað og gáfu henni einnig olnbogaskot í gagnaugað, hótuðu að stinga þau með sprautunál og höfðu í lífláts- og líkamsmeiðingarhótunum við þau. Ákærðu skipuðu A að aka bifreiðinni af stað og stöðva bifreiðina við Glæsibæ, þar sem annar ákærðu tók við akstri bifreiðarinnar og ók henni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal, þar sem ákærðu þvinguðu A til að millifæra 780.000 kr. inn á reikning ákærða Kristófers. Þaðan sögðu þeir A að aka bifreiðinni að bifreiðaplani við Metro við Suðurlandsbraut þar sem ákærðu tóku símana af A og B, annars vegar iPhone X síma og hins vegar iPhone 11, auk þess sem þeir tóku kveikjuláslykla bifreiðarinnar áður en þeir yfirgáfu hana. Af framangreindu hlaut B vægan heilahristing.“

Játuðu brotin og segjast hafa bætt ráð sitt

Báðir mennirnir eiga töluverðan sakaferil að baki. Þeir játuðu brot sín og lýstu yfir iðrun og „vilja til að ná bata af fíknisjúkdómi sínum“ eins og segir í dómnum.

Karlmaðurinn sem varð fyrir árás þeirra félaga krafðist samtals 1.480.000 króna, þar af eru 700.000 krónur miskabætur en 780.000 eru upphæðin sem hann var neyddur til að millifæra af reikningi sínum. Konan krafðist 700 þúsund króna í miskabætur.

Mennirnir voru hvor um sig dæmdir í 15 mánaða fangelsi. Dæmdar bætur voru nálægt kröfum brotaþolanna. Þurfa þeir að greiða manninum 1.380.000 krónur og konunni 600.000 krónur.

Dóminn má lesa hér

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fór huldu höfði á Íslandi en eftirlýstur í Póllandi – Sagðist ekki geta farið í flugvél vegna höfuðhöggs

Fór huldu höfði á Íslandi en eftirlýstur í Póllandi – Sagðist ekki geta farið í flugvél vegna höfuðhöggs
Fréttir
Í gær

Ritstjóri Austurfréttar ánægður með árshátíðina dýru – „Ekki há upphæð fyrir fyrirtæki með tekjur upp á 52 milljarða króna“

Ritstjóri Austurfréttar ánægður með árshátíðina dýru – „Ekki há upphæð fyrir fyrirtæki með tekjur upp á 52 milljarða króna“