Lögreglustjórinn hefur ákært ökumann sem hélt áfram flótta sínum undan lögreglu eftir að eitt hjól losnaði undan bíl hans. Fyrirkall og ákæra eru birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta manninum ákæru. Hann ber erlent nafn en er skráður til heimilis í Mosfellsbæ.
Maðurinn er sakaður um þrjú umferðarlagabrot á árinu 2022 en það þriðja, sem átti sér stað í lok október, er skrautlegast. Þar reyndi maðurinn allt sem í hans valdi stóð til að flýja undan lögreglu og lét ekki stöðva sig þó að hjól færi undan bíl hans. Við Fjallkonuveg í Reykjavík sinnti maðurinn ekki stöðvunarmerkjum lögreglu heldur jók hraðann. Atvikum er síðan lýst svo í ákæru:
„…ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu sem gefin voru með ljós og hljóðmerkjum lögreglubifreiðar þegar hún hugðist stöðva aksturinn heldur aukið hraðann og ekið áfram inn í hringtorg inn á Hallsveg án þess að gefa stefnumerki úr hringtorginu og áfram um Hallsveg og aftur ekið inn í annað hringtorg á gatnamótum Hallsvegs og Langarima án þess að gefa stefnumerki úr hringtorginu og ekki stöðvað aksturinn fyrr en í Langarima við Rósarima og Mururima, og jafnframt með því að hafa, í framangreint skipti er lögregla hafði afskipti af ákærða og hugðist teygja sig eftir kveikjuláslykil bifreiðreiðinnar til þess að drepa á henni, haldið akstrinum áfram og ekið á brott frá lögreglu yfir grasbala á umferðareyju við Langarima og Laufrima til að komast framhjá lögreglubifreið sem var komin til aðstoðar. Á hringtorgi við Langarima og Borgarveg reyndi lögregla að stöðva akstur ákærða með því að aka lögreglubifreið nr. 206 utan í bifreiðina, með þeim afleiðingum að hjólbarði hægra megin að aftan losnaði af bifreiðinni NA-R65. Þrátt fyrir þetta hélt ákærði akstrinum áfram inn í botnlanga við Laufrima 20-24 og stöðvaði ekki fyrr en hann komst ekki lengra og var króaður af. Á meðan á eftirförinni stóð gaf ákærði aldrei stefnumerki.“
Þess skal getið að maðurinn ók undir áhrifum áfengis og fíkniefna.
Lögreglustjóri krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar.
Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 1. nóvember næstkomandi.