fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Karen Olga fyrst Íslendinga í Alþjóðaráð UNICEF

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 3. júlí 2023 09:27

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Karen Olga Ársælsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir, fjáröflunarstjóri UNICEF á Íslandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karen Olga Ársælsdóttir er fyrsti Íslendingurinn til að taka sæti í Alþjóðaráði UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðaráðið er vettvangur innan UNICEF fyrir stærstu einstaklingsfjárfesta í verkefnum stofnunarinnar þar sem þeim gefst tækifæri til að hafa áhrif, ekki einungis í formi framlaga, heldur einnig hugmynda, ráðlegginga og ráðfærslu. Kemur þetta fram í tilkynningu frá UNICEF.

„Það er mér mikill heiður að geta lagt mitt af mörkum í Alþjóðaráði UNICEF og til þess mikilvæga starfs sem UNICEF vinnur. Ég vona líka að þetta verði öðrum hvatning, sem staðið hafa í mínum sporum og finna kannski ekki hugsjón sinni farveg, um að taka samtalið við félög á borð við UNICEF. Ég mæli heilshugar með því,“

segir Karen Olga. Hún hefur til margra ára stutt af miklum myndarskap við verkefni UNICEF með kjarnaframlögum, framlögum til sérverkefna á Fílabeinsströndinni og Madagaskar sem og í neyðarsafnanir UNICEF á Íslandi. 

Fékk gildi og hugsjón í vöggugjöf

Í nýlegri skýrslu UNICEF, Core Resources for Results 2022, er einmitt rætt við Karen Olgu um hugsjón hennar um betri framtíð fyrir öll börn og hvað varð til þess að hún ákvað að láta gott af sér leiða. Þar segist hún hafa fengið gildi sín og hugsjón í vöggugjöf frá foreldrum sínum sem ólust upp við mikinn skort, en ólíkar aðstæður. Faðir hennar í litlu sjávarþorpi hér á landi en móðir hennar í Varsjá í seinni heimsstyrjöldinni og var Karen Olga alin upp við mikilvægi þess að leggja sitt af mörkum í þágu jöfnuðar. 

Þegar hugbúnaðarfyrirtækið Rauðás, sem Karen Olga stofnaði ásamt eiginmanni sínum, fór að njóta mikillar velgengni var það þessi hugsjón sem bjó að baki ákvörðun hjónanna að láta 30 prósent af hagnaði fyrirtækisins renna til góðgerðarmála, þar á meðal UNICEF. 

Aðeins nokkrum árum áður höfðu þau fyrir tilviljun kynnst starfsemi UNICEF eftir að hafa tekið spjall við sjálfboðaliða á vegum samtakanna á förnum vegi. Verkefni og hugsjón UNICEF um réttindi og velferð fyrir öll börn töluðu til Karenar Olgu og eftir því sem fyrirtæki þeirra hjóna óx og dafnaði, jókst framlag þeirra og áhugi á mannúðarstarfi.

Hélt starfsemi fyrirtækisins áfram eftir fráfall eiginmannsins

Þegar eiginmaður Karenar Olgu féll frá leitaði hún að tilgangi og hvatningu til að halda starfsemi fyrirtækis þeirra áfram í skugga harmleiksins. Hún fann að eigin sögn þann tilgang í UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Innganga hennar í Alþjóðaráðið nú er viðurkenning á einstökum stuðningi hennar og hugsjón um betri framtíð fyrir börn um allan heim.

„Við erum ákaflega stolt af því að Karen Olga fái sæti í Alþjóðaráði UNICEF, fyrst allra Íslendinga. Karen Olga fjárfestir í framtíð barna af heilum hug, hún er hugsjónakona sem tekst á einstakan hátt að vera bæði sterk og auðmjúk, og það er ljóst í mínum huga að ef það væru fleiri eins og hún væri heimurinn svo sannarlega betri staður. Karen Olga er virkilega vel að því komin að fá sæti í Alþjóðaráðinu og við vitum sem er að það er mikill akkur fyrir ráðið að njóta krafta Karenar. Við hlökkum til framhaldsins,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Í gær

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“