fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

Loksins, loksins góðar fréttir fyrir landsmenn úr herbúðum sérgreinalækna – Tímamótasamningur undirritaður

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 27. júní 2023 13:30

Mynd/Stjórnarráð Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hlaut að koma að því, þó það hafi nú tekið lengri tíma en jafnvel þeir svartsýnustu spáðu. Læknafélag Reykjavíkur hefur náð samkomulagi við Sjúkratryggingar Íslands um þjónustu sérgreinalækna.

Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðs Íslands, en þar segir að samningurinn sé langtímasamningur sem gildi til fimm ára og tekur að fullu gildi í september á þessu ári.

Samningur þessi mun stuðla að umtalsverðri lækkun á greiðsluþátttöku almennings í þjónustu sérfræðilækna og mynda styrka umgjörð um starfsemi sérfræðilækna sem mun svo stuðla að bæði framþróun þjónustunnar og auknu aðgengi að henni, eða svo segir í tilkynningu.

Í samningnum er fjármagn til þjónustu sérgreinalækna aukið um 4,2 milljarða á ársgrundvelli, en þessa hækkun má rekja til verðlags- og launaþróunar. Aukagjöld sem hafa verið lögð á þjónustu sérgreinalækna undanfarin ár munu falla niður og ætla má að með þessu samningi muni almenningur spara sér um 3 milljarða í greiðsluþátttöku á ári hverju.

„Samningurinn felur í sér mikinn ávinning fyrir almenning og tryggir jafnt aðgengi að þjónustu sérfræðilækna óháð efnahag. Með samningnum er bundinn endi á þá óvissu og óhagræði sem hlotist hefur af samningsleysi undanfarinnar ára en sérgreinalæknar hafa verið samningslausir síðan í janúar 2019,“ segir í tilkynningu.

Jafnframt verður á samningstíma unnið að ýmsum samstarfsverkefnum sem eiga að auka þjónustu við sjúklinga og tryggja að starfsemi sérgreinalækna endurspegli öra þróun læknavísinda. Má finna í samningnum ýmis nýmæli til að styðja við þetta markmið meðal annars sérstakan hvata fyrir lækna til að vinnan innan svonefndra starfsheilda sem sinna gæðamálum, stuðla að bættu aðgengi að þjónustu og styðja við þverfaglega teymisvinnu. Samráðsnefnd verður komið á fót með aðilum frá Sjúkratryggingum og Læknafélaginu og mun nefndin vinna að heildstæðri þjónustu- og kostnaðargreiningu og reglulegri endurskoðun gjaldskrár.

Aðilar samningsins eru að vonum lukkulegir með afraksturinn, en Willum Þór Þórsson, segir að samningurinn marki tímamót.

„Þessi samningur markar tímamót. Að tryggja gott og jafnt aðgengi að þessari mikilvægu læknisþjónustu óháð efnahag er mikið gleðiefni og í samræmi við stefnu stjórnvalda. Þetta er samningur sem gerður er í góðri sátt. Horft er til framtíðar og samráð eflt milli allra aðila þannig að hægt sé að þróa heilbrigðisþjónustuna áfram í takt við þörf samfélagsins.“

Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, tekur undir með Willum og þakkar fulltrúum lækna fyrir samstarfið sem og starfsfólki Sjúkratrygginga fyrir þeirra framlag.

 „Samningur Sjúkratrygginga við sérfræðilækna eru mikil tímamót en eins og allir þekkja að þá hafa sérfræðilæknar verið samningslausir síðan 2019. Hlutverk Sjúkratrygginga er að stuðla að bættum lífsgæðum með aðgengi að góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu. Með samningnum lækkar kostnaður þeirra sem þurfa að leita sér sérfræðiþjónustu sem er afar jákvætt. Þá eru margvísleg nýmæli í samningnum sem munu skila sér í skilvirkari þjónustu og bættu aðgengi fólks að henni. Sjúkratryggingar vilja þakka fulltrúum lækna fyrir árangursríkt samstarf við gerð nýs samnings. Þá vil ég þakka starfsfólki Sjúkratrygginga fyrir mikið og gott framlag.“

Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, segir að þessi samningur sé ekki bara fyrir lækna heldur fyrir fólkið í landinu. Í honum felist jafnframt tækifæri til framþróunar.

„Þessi samningur er fyrir sjúklingana okkar, fyrir fólkið í landinu. Þetta er samningur um að tryggja aðgengi að mikilvægri, hagkvæmri og umfangsmikilli læknisþjónustu. Þessi samningur felur í sér tækifæri til að þróa heilbrigðisþjónustu áfram í samvinnu við Sjúkratrygginga með þarfir sjúklinga að leiðarljósi. Ég vil nota tækifærið og þakka Sjúkratryggingum og kollegum mínum í samninganefnd fyrir gott samstarf.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Talaði Trump af sér?

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“

Hinn grunaði morðingi Mangione getur ekki stundað kynlíf en er orðinn kyntákn – „Svooooooo heitur“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT

Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hafa sagt sig úr SVEIT
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Talaði Trump af sér?