fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Fréttir

„Fordæma einræðistilburði bæjarstjóra Kópavogs“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 26. apríl 2023 20:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er þyngra en tárum taki að nú sé verið að slátra tveimur af fimm menningarhúsum Kópavogs og vega að tveimur öðrum til viðbótar,“ segir í færslu Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fordæmir vinnubrögð meirihluta bæjarstjórnar í málefnum menningarhúsa Kópavogs. 

Segir Samfylkingin fullkominn skort á faglegum og lýðræðislegum vinnubrögðum í stjórnsýslu og vanþekkingu á viðurkenndum vinnubrögðum um stefnumótun hafa einkennt tillögur sem lagðar voru fyrir bæjarstjórn til samþykktar 25. apríl síðastliðinn án nauðsynlegra upplýsinga til ákvarðanatöku.

Rakin er forsaga málsins, meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs gerði samning við KPMG um ráðgjöf í tengslum við menningarmál og skýrslugerð þar um í byrjun október 2022 án vitneskju annarra hagaðila. Lista- og menningarráð fékk fyrst vitneskju um úttekt á starfsemi húsanna í desember 2022. Ráðið fer samkvæmt bæjarmálasamþykkt og erindisbréfi með stjórn húsanna og er stefnumótandi í menningarmálum bæjarins og ber að veita ráðgjöf í málaflokknum. Úttektin á starfsemi húsanna var unnin án umboðs frá bæjarráði en skýrslan kostaði 2 milljónir króna.

Þegar skýrslan og svo hugmyndir bæjarstjóra sem byggðar voru á henni voru loks til umræðu í lista- og menningarráði var ráðið múlbundið og því tjáð að um trúnaðargögn væri að ræða. Með herkjum tókst þó að knýja fram aukafund til að fá fram viðhorf forstöðumanna menningarhúsanna og var hverjum þeirra skammtaðar 15 mínútur á fundinum og alls ekki mátti ræða tillögur bæjarstjóra sem voru bundnar trúnaði. Forstöðumennirnir gátu því aðeins tjáð sig um skýrslu KPMG en í kjölfarið lögðu þeir allir fram afar vönduð minnisblöð sem sýna hve mikil hrákasmíð skýrslan er enda full af rangfærslum og misskilningi,“ segir í færslunni og bent á að minnisblöð forstöðumannanna hafa nú loks verið gerð opinber ásamt öðrum gögnum og fylgja fundargerð ráðsins frá 11. apríl síðastliðnum.

Þau eru afar merkileg heimild um þau vinnubrögð sem bæjarstjóra Kópavogs finnast ásættanleg. Bókanir minnihlutans vegna málsins eru nú einnig aðgengilegar í fundargerðum.

Rakið er í færslunni að mest hafi verið fjallað um örlög Héraðsskjalasafns Kópavogs sem nú á að leggja niður. Héraðsskjalasafnið hefur verið í óviðunandi húsnæði og verið fjársvelt árum saman en niðurlagning þess lagar ekki þann vanda. Náttúrufræðistofa Kópavogs er einnig lögð niður í núverandi mynd en Gerðarsafni ætlað að sjá um sýningarhald náttúruminja og rannsóknir á þeim áfram. Safnaráð bendir á að við þessa breytingu geti Náttúrufræðistofan ekki talist viðurkennt safn lengur og muni missa styrki og faglegan stuðning sem hún hefur notið til þessa en viðurkenndum söfnum ber að stunda rannsóknarstarf. Safnkostur Náttúrustofu er ekki þess háttar að hann dugi til rannsókna áfram þótt bæjarstjóri telji að hægt sé að hafa heilan starfsmann í að rannsaka uppstoppaða fugla og gamalt skeljasafn.

Salurinn, einstakt tónlistarhús, var á dauðalistanum samkvæmt upphaflegum tillögum bæjarstjóra sem fannst tilvalið að útvista starfseminni og breyta þessari menningarperlu í skemmtistað. Á ögurstundu var tillögum um Salinn breytt og nú á að stofna starfshóp til að skoða fýsileika útvistunar. Við getum því enn haldið í vonina með hann.

Fulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi fordæma einræðistilburði bæjarstjóra Kópavogs og hafa bókað andstöðu sína á óvönduðum vinnubrögðum hans við hvert tækifæri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Óprúttnir netglæpamenn herja á ferðaþjónustufyrirtæki – „Þeir kaupa þjónustu með fölskum kortanúmerum“

Óprúttnir netglæpamenn herja á ferðaþjónustufyrirtæki – „Þeir kaupa þjónustu með fölskum kortanúmerum“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir

Gamla góða Cocoa Puffs aftur á leið í verslanir
Fréttir
Í gær

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“

Ólafur Ágúst spyr hvort Vernd sé einkarekið fangelsi í dulbúningi – „Ákveðin tegund þrælahalds“
Fréttir
Í gær

Selenskíj varpar ljósi á það hversu margir úkraínskir hermenn hafa fallið í stríðinu

Selenskíj varpar ljósi á það hversu margir úkraínskir hermenn hafa fallið í stríðinu
Fréttir
Í gær

Ilræmdur rússneskur pyntingastjóri drepinn með bílsprengju

Ilræmdur rússneskur pyntingastjóri drepinn með bílsprengju
Fréttir
Í gær

Uppnám í Langholtshverfi vegna drápshunda – „Þessir hundar voru að drepa kött kærastans míns! Hringdu á lögguna strax“

Uppnám í Langholtshverfi vegna drápshunda – „Þessir hundar voru að drepa kött kærastans míns! Hringdu á lögguna strax“