Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um mann í gærkvöldi sem var að áreita fólk og hafa í hótunum við vegfarendur við verslunarkjarna í borginni.
Stuttu síðar var tilkynnt um að sami maður hefði stolið bifreið sem að skilin var í gangi fyrir utan veitingastað og ekið henni á brott.
Að sögn lögreglu upphófst þá töluverð leit lögreglu að bifreiðinni sem að bar árangur þegar lögreglumenn sáu bifreiðina á ferðinni. Lögregla stöðvaði ökumanninn og var hann handtekinn í kjölfarið og vistaður í fangaklefa, grunaður um nytjastuld, akstur undir áhrifum, eignaspjöll og akstur án réttinda.
Lögreglumenn á lögreglustöð 4, sem sinnir Mosfellsbæ, Grafarvogi og Árbæ, fengu tilkynningu um tvo menn í annarlegu ástandi ganga á milli bifreiða og virtust vera í þeim tilgangi að komast yfir verðmæti.
Lögreglan náði tali af mönnunum sem voru svo handteknir í kjölfarið með verðmæti sem lögregla telur vera þýfi. Þeir voru vistaðir í fangaklefa.
Í sama umdæmi var tilkynnt um þjófnað á töluverðu magni af eldsneyti af tveimur bifreiðum sem stóðu á athafnasvæði.