fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Harmleikur á eggjabúi – Landsréttur ómerkir dóm héraðsdóms í máli konu sem varð öryrki eftir vinnuslys

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 11. mars 2023 11:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Reykjavíku í máli konu sem stefndi TM vegna slyss sem hún varð fyrir við vinnu sína hjá eggjabúinu Nesbú.

Slysið varð í lok janúar árið 2020. Kona sem hafði unnið í fimm ár hjá fyrirtækinu við að sjóða og brjóta egg lenti í hálkuslysi utandyra er hún var að fara út með rusl, sem var hluti af vinnuskyldum hennar. Hálka var úti þennan dag og féll konan á leið sinni að ruslagáminum. Fékk hún hálstognun og tognun á öxl. Varð hún tímabundið óvinnufær vegna slyssins og tímabundið með 100% örorku.

Konan höfðaði mál á hendur tryggingafélagi Nesbúeggja, TM, þar sem hún krafðist þess að skaðabótaskylda TM í málinu yrði viðurkennd. Málið höfðaði hún á þeim forsendum að Nesbúeggjum hefði borið skylda til að tryggja hálkulausar gönguleiðir að ruslagáminum. Um þetta sagði í dómi héraðsdóms sem nú hefur verið ómerktur:

„Stefnandi byggir á því, að það sé á ábyrgð vinnuveitanda að sjá til þess að gönguleiðir starfsfólks séu greiðar og ekki þeim eiginleikum haldnar að þær feli í sér hættu á líkamsmeiðslum eða annars konar heilsuspjöllum. Hafi stefndi Nesbúegg ehf. ekki staðið undir þeirri ábyrgð, í andstöðu við lög og reglur, og teljist það félaginu til sakar. Slys stefnanda og eftirfarandi líkamstjón sé sennileg afleiðing þeirrar saknæmu háttsemi og teljast því skilyrði sakarreglunnar uppfyllt í þessu tilfelli gagnvart stefnda Nesbúeggjum ehf. Er það í samræmi við þær meginreglur sem fram koma í lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, að gönguleiðir þær, er starfsfólki er ætlað að fara um, séu ekki með þeim hætti að starfsfólki stafi hætta af. Í þessu felist m.a. að viðeigandi hálkuvörnum skuli komið við, enda stafi af sleipu undirlagi mikil hætta á líkamstjóni vegna fyrirsjáanlegrar fallhættu.

Vísar stefnandi til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 46/1980, sem kveði á um að atvinnurekandi og/eða verkstjóri hans skuli stuðla að góðum aðbúnaði, hollustuháttum
og öryggi á vinnustað. Jafnframt segi í a- og b-lið 13. gr. laganna að atvinnurekandi skuli tryggja, að gætt sé fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar, og það sérstaklega varðandi framkvæmd vinnu og vinnustaði.

Þá segi í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 46/1980 að vinnu skuli haga og framkvæma þannig, að gætt sé fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar og hollustuhátta.“

Nesbúegg og TM höfnuðu skaðabótaskyldu og töldu atburðinn annaðhvort vera óhappatilvik eða sökin væri konunnar sjálfrar sem hefði átt að gæta sín sjálf enda vissi hún um hinar erfiðu aðstæður. Væri atvikið því rakið til gáleysis konunnar.

Á þessar röksemdir féllst héraðsdómur í fyrra en í niðurstöðunni segir að slysið verið ekki rakið til annars en gáleysis stefnanda. Hún hafi sjálf tekið ákvörðun um að fara út með ruslið þó að hún vissi af hálkunni. „Stefnandi hafði unnið í fimm ár hjá stefnda í sama starfi og var öllum hnútum og aðstæðum á vinnustaðnum kunnug. Átti hún því að vera vel meðvituð um nauðsyn þess að gæta allrar varúðar og ýtrustu aðgæslu gagnvart hálku sem gat myndast á svæðinu út að ruslagámnum enda fór hún þar um nánast daglega. Það gerði hún ekki í þetta sinn og verður að bera ábyrgð á því sjálf,“ segir í dómsniðurstöðunni.

Verður að taka málið aftur fyrir í héraðsdómi

Landsréttur ómerkti dóminn á föstudag á þeirri forsendu að héraðsdómari hefið ekki tekið rökstudda afstöðu til röksemda konunnar sem benti á að Nesbú hefði ekki tilkynnt um slys hennar til Vinnueftirlitsins og bæri því hallann af því að ekki lægju fyrir fullnægjandi sannanir um ástæðu slyssins. Í niðurstöðu Landsréttar segir meðal annars:

„Ekki var hægt að komast efnislega að niðurstöðu um sýknu stefndu af viðurkenningarkröfu áfrýjanda án þess að tekin væri afstaða til þessara málsástæðna, sbr. f-lið 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Samkvæmt því verður ekki hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og leggja fyrir héraðsdómara að taka málið til munnlegs málflutnings og dómsálagningar á ný.“

Sjá nánar hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“