Inga Lind Karlsdóttir, eigandi framleiðslufyrirtækisins Skot, tjáir sig með hvössum hætti um skýrslu Ríkisendurskoðunar í pistli með yfirskriftinni Húskarlar fara hamförum. Segir Inga Lind það þekkta aðferð manna með veikan málstað að ráðast á þann sem er ósammála þeim í stað þess að rökræða við hann.
„Stundum er notað íþróttamál og þá er þetta kallað að fara í manninn en ekki boltann, viðkomandi er sem sagt svo slakur á vellinum að hann ræður ekkert við boltann og reynir því í vanmætti sínum að meiða mótherjann í staðinn. Slík hegðun þykir ekki stórmannleg.“
Vísar Inga Lind til að skýrsla ríkisendurskoðunar innihaldi metfjölda athugasemda við sjókvíaeldi og olli mörgum, meðal annars formanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis áfalli, uppnámi og reiði.
Skýrslu ríkisendurskoðunar má lesa í heild sinni hér.
Vill frekar fara í boltann en manninn
Inga Lind segir að hún sé meira fyrir að fara í boltann en manninn og því „dettur mér ekki í hug að munnhöggvast við íslenska húskarla norsku laxeldisrisanna sem eru raunverulegir eigendur sjókvíanna í íslensku fjörðunum.“ Segist hún vilja halda til haga nokkrum staðreyndum.
„Fyrst fögnuðu húskarlarnir skýrslunni og létu eins og iðnaðurinn hefði jú einmitt áður bent á ýmsa vankanta í umgjörðinni. Þessi viðbrögð komu fram þrátt fyrir að hinar alvarlegu brotalamir eru flestar til staðar einmitt vegna þrýstings frá sjókvíeldisfyrirtækjunum sjálfum,“ segir Inga Lind og segir norðmenn hafa komið sínum húskörlum að við gerð laga og reglna auk þess að koma sér markvisst undan því að greiða til ríkisins,
„þá fjármuni sem þarf til að standa undir kostnaði við stjórnsýslu, eftirlit og umhverfisvöktun vegna sjókvíaeldis með lax, svo ekki sé minnst á að greiða sanngjarnt gjald fyrir afnot af náttúruauðlindum í eigu þjóðarinnar.“
Vildu rýja ríkisendurskoðanda trausti
Segir Inga Lind húskarlana hafa vaknað upp við vondan draum eftir að hafa lesið alla skýrsluna, séð að hún átti við rök að styðjast og því næsta í stöðunni að fara í manninn, ríkisendurskoðanda og rýja hann trausti. Segir hún ógeðfellt að alþingismenn hafi tekið þátt með því að halda því fram að hann „hefði mikla hagsmuni af umhverfi laxveiði“ og segir slíkt gert til að afvegaleiða umræðuna um efnisatriði skýrslu ríkisendurskoðunar.
Tiltekur Inga Lind þá hagsmuni sem eru opinber gögn, en ríkisendurskoðandi og eiginkona hans eiga í jörð sem um rennur á. „Í þessari á hafa að meðaltali veiðst 46 laxar á ári undanfarin ár. Veiðileyfin eru ekki seld á almennum markaði og reyndar er þetta vatnsfall nánast óþekkt meðal áhugafólks um laxveiði. Fjárhagslegu hagsmunirnir eru sem sagt engir.“ Segir Inga Lind að „ekki stendur steinn yfir steini í þeirri umgjörð sem stjórnvöld báru ábyrgð á að skapa sjókvíaeldi með laxi.“
Hafa gagnrýnt sjókvíaeldi lengi
Segir Inga Lind að einnig hafi verið reynt að gera starfsemi Íslenska náttúruverndarsjóðinn (Icelandic Wildlife Fund) tortryggilega, en Inga Lind situr í stjórn hans og segir hún IWF hafa gagnrýnt sjókvíaeldi í áraraðir ásamt mörgum öðrum náttúruverndarsamtökum víða um heim. Segir hún gríðarlegan aðstöðumun í baráttunni.
„Í nýjasta ársreikningi IWF kemur fram að tekjurnar árið 2021 voru 13,5 milljónir. Þær saman standa af frjálsum framlögum tuga einstaklinga og fyrirtækja og allar upplýsingar eru aðgengilegar á þeim opinberu stöðum sem þær eiga að vera. Húskarlarnir (sumt stjórnmálafólk þar með talið) eru hins vegar fulltrúar sjókvíaeldisfélaganna en norsk móðurfélög þeirra eru svo stór og rík að samanlagður íslenskur sjávarútvegur er eins og peð við hliðina á þeim. Þessir risar hafa svo liðsstyrk í Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) sem er ríkustu og öflugustu hagsmunagæslusamtök landsins.
Í skýrslu ríkisendurskoðunar kemur fram að fjórtán af sextán rekstrarleyfum sjókvíaeldis eru á hendi félaga undir yfirráðum þriggja norskra fyrirtækja. Með öllu óskiljanlegt er að SFS hafi ákveðið að gera málstað þessara norsku sjókvíaeldisrisa að sínum. Fyrir þá eru allt aðrir hagsmunir í húfi en vernd íslenskrar náttúru og lífríkis.“
Stolt af baráttunni
Inga Lind segist stolt af því að vera í Íslenska náttúruverndarsjóðnum sem hafi náð að „rugga þeim skuggalega báti sem liðast um íslenska firði með eyðingarmátt og íslenska húskarla við stýrið. Gleymum því aldrei að um þetta snýst þessi barátta fyrst og síðast: að forða umhverfi og lífríki landsins okkar frá skaða. Og þangað sækjum við kraft sem engir peningar heimsins duga til að vega á móti.“
Inga Lind segir að verkefnið framundan sé að skýrslan gleymist ekki. Aðgerða sé þörf því baráttan sé ekki búin, norsku sjókvíarnar eru allar hér enn og ekki minna skaðlegar en áður.