fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Verður konunglegur veislusalur í miðborginni að svefnhylkjagististað?

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 14. febrúar 2023 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhugaverð umsókn var tekin fyrir á fundi byggingafulltrúa Reykjavíkur fyrir viku, þriðjudaginn 7. febrúar, þar sem sótt var um leyfi til að innrétta kjallara að Hallveigarstíg 1 til gistirekstrar fyrir svefnhylki, en alls á að vera pláss fyrir 140 gesti. Umsókninni var frestað með vísun til athugasemda.

Hallveigarstígur 1 – USK23010136 Sótt er um leyfi til að innrétta kjallara, rými 01-0001, til gistirekstrar fyrir 140 gesti í svefnhylkjum, í sjö brunahólfum, aðalinngangur um ramp á norðurhlið inn í móttökusal gistirekstrar, í húsi á lóð nr. 1 við Hallveigarstíg. Frestað. Vísað til athugasemda.

Eigandi húsnæðisins er Magic-Viking ehf., sem er í eigu Kirsten Marie Holmen, sem er einnig eigandi barsins Magic Ice á Laugavegi. 

Hallveigarstígur 1 er í hjarta miðbæjarins og gekk fyrr á árum gekk undir nafninu Hús iðnarins. Húsið var byggt árið 1969 og í janúar 1995 opnaði veislusalur í kjallara hússins sem fékk nafnið Gullhamrar, sem stýrt var af Lúðvík Th. Halldórssyni eiganda Veitingamannsins ehf. 

Mynd: timarit.is
Mynd: timarit.is

Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffi, tók síðar við rekstrinum og var salurinn vinsæll undir ýmsa mannfagnaði, brúðkaup, árshátíðir, þorrahlaðborð og fleira. Í öllum auglýsingum var jafnan talað um: Versalir – konunglegir veislusalir við Hallveigarstíg. Síðar var nafninu aftur breytt og bar síðustu ár nafnið Silfursalir. 

Mynd: timarit.is
Margir drykkir hafa verið pantaðir, blandaðir og drukknir við veglegt barborð Versala.

Áform um 800 fermetra rafíþróttastað

Sumarið 2021 voru birtar fréttir af því að Heimavöllur eSports, sem samanstóð af reynsluboltum í atvinnulífinu hygðust opna 800 fer­metra rafíþrótt­astað undir nafninu Heimavöllur með góðri aðstöðu til æf­inga, keppni og skemmt­un­ar í rafíþrótt­um. Einnig að fyrsti rafíþrótta­bar lands­ins verði opnaður í hliðarsal hús­næðis­ins.

Spennandi tímar framundan í rafíþróttum! Ákvað að fjárfesta í þessu frábæra verkefni og tók að mér stjórnarformennsku. Ýmsir spennandi snertifletir á því sem við hjá OZ höfum verið með í þróun síðustu árin, skrifaði stjórn­ar­formaður fé­lags­ins Guðjón Már Guðjóns­son, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri tæknifyr­ir­tæk­is­ins OZ,  í færslu á Facebook 29. júní 2021. 

Ásamt Guðjóni skipuðu stjórn­ina Mel­ína Kolka Guðmunds­dótt­ir, vara­formaður Rafíþrótta­sam­taka Íslands og stofn­andi Tölvu­leikja­sam­bands ís­lenska kvenna, Gest­ur Pét­urs­son, for­stjóri Veitna, Jó­hann­es Þór Skúla­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferðaþjón­ust­unn­ar, og Tryggvi Freyr El­ín­ar­son, eig­andi og þró­un­ar­stjóri Datera.

Ekkert varð þó af þessum áformum, enda heimsfaraldur kórónuveirunnar í gangi með meðfylgjandi samkomutakmörkunum og bönnum, og samkvæmt heimildamanni DV erfitt fyrir fjárfesta að setja yfir 100 milljónir í verkefni í mikilli óvissu um innkomu í óákveðinn tíma.

Í húsnæðinu í dag er meðal annars verslun Krónunnar og veitingastaðurinn Chickpea, sem er með fullt hús eða 5 stjörnur á vef Tripadvisor.

Svefnhylkjagisting áður reynd

Í desember árið 2015 opnaði Galaxy Pod Hostel á Laugavegi 172 og sagði eigandinn í viðtali við Vísi viðbrögðin hafa farið fram úr björtustu væntingum hans og að fólk kæmi jafnvel gagngert hingað til lands til að prófa að sofa í svefnhylki. Samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins er það lokað vegna framkvæmda.

Skorri Rafn vill breyta skrifstofum í gistirými

Á fundi byggingafulltrúa sama dag var einnig tekið fyrir umsókn um leyfi til að breyta 3. hæð hússins úr skrifstofu í níu herbergi gistiheimili fyrir 18 gesti. Viðbót við fjögur herbergi sem fyrir eru á fjórðu hæð hússins. Umsókninni var frestað með vísun til athugasemda.

Hallveigarstígur 1 – BN060827 Sótt er um leyfi til að breyta notkun 3. hæðar úr skrifstofu í gististað án veitinga, í flokki II, teg. b., stærra gistiheimili, með níu herbergi fyrir 18 gesti á 3. hæð sem er viðbót við þau fjögur herbergi sem fyrir eru á 4. hæðinni, samtals 13 herbergi í húsi á lóð nr. 1 við Hallveigarstíg. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta erindis BN057663 og afgreiðslubréf skipulagsfulltrúa dags. 10. mars 2022. Frestað. Vísað til athugasemda.

Eignarhlutinn á þriðju hæð er í eigu Alva Capital ehf., sem er í eigu Skorra Rafns Rafnssonar, sem var meðal annars stofnandi og fyrrum eigandi Netgíró og Móberg, og hefur setið í  stjórnum Inkasso, Netgiro, Heimkaup, Hópkaup, Bland og fleiri fyrirtækja.

Gangi ofangreindir umsóknir munu því heyrast hrotur úr konunglegum kjallara Hallveigarstígs 1 þaðan sem áður barst gleði- og glasaglaumur fram á nótt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Í gær

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“