Barn á leikskólaaldri veiktist af nikótíneitrun eftir að hafa tuggið nikótínpúða sem það taldi vera tyggjó. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Þar segir að barn á einum leikskóla bæjarins hafi fundið nikótínpúðadós á leikskólalóð og hafi í kjölfarið boðið vini sínum upp á „tyggjó“. Börnin smökkuðu bæði en spýttu púðunum fljótt út úr sér.
Skömmu síðar varð annað barnið veikt og greindist í kjölfarið með nikótíneitrun. Í tilkynningu segir að starfsfólk leikskólans ahfi brugðist hárrétt við aðstæðum og betur hafi farið en á horfðist.
Barnið jafnaði sig fljótlega eftir heimsókn á Sjúkrahúsið á Akureyri og gat mætt í leikskólann daginn eftir.
Í tilkynningunni segir ennfremur:
„Það var mikið lán að barnið gleypti ekki púðann þar sem það margfaldar áhrif nikótínsins. Helstu einkenni nikótíneitrunar í börnum eru ógleði, uppköst og svimi, en þau geta verið alvarlegri og jafnvel banvæn.
Í öllum leikskólum Akureyrarbæjar eru útisvæðin yfirfarin daglega af starfsfólki skóla til að tryggja öryggi barna. Vissulega getur það reynst krefjandi í rysjóttu veðri og í vetrarrökkrinu.“
Bærinn minnir á að nikótínpúðar, notaðir sem og ónotaðir, eigi ekki heima í leikskólum, hvorki innan veggja né utan. Það sé jafnframt brot á lögum um nikótínvörur þar sem segir að notkun slíkra vara sé óheimil þar sem starfsemi fyrir börn og ungmenni fer fram.
„Börn eru forvitin að eðlisfari og rannsaka það sem fyrir augu ber með fjölbreyttum hætti, meðal annars með því að setja hluti upp í sig. Brýnum fyrir börnum að smakka hvorki né drekka það sem þau vita ekki hvað er. Hugum vel að því hvar hættuleg og skaðleg efni eru geymd og hvar og hvernig þeim er fargað.“