„Þetta varðar ljótar hótanir frá börnum í garð barna. Maður gerði ýmislegt af sér sjálfur þegar maður var gutti og þetta eru auðvitað bara krakkar en þetta þarf að stoppa,“ segir Kristján Már Guðnason. Barnsmóðir hans og börn hennar, þar á meðal dóttir Kristjáns, hafa þurft að þola stöðugar ofsóknir frá hópi barna í gegnum síma undanfarna daga.
Konan og börn hennar búa í Hveragerði en Kristján veit ekki hvaðan börnin eru. Ljóst sé hins vegar að þessi börn hafi ýmsar upplýsingar um sig og fjölskylduna, þ.e. þau þekki fullt nafn hans, dóttur hans og barnsmóður, og þekki til barna barnsmóður hans.
„Þetta byrjaði með því að sendu mér sms, eitthvað sem mér fannst vera saklaust grín. En í kjölfarið fara þau að hringja úr leyninúmeri í móður og börn og eru með mjög ljótar hótanir,“ segir Kristján og segir aðspurður að þetta séu „allt að því líflátshótanir“.
Hann segir að tilkynningar til lögreglu hafi engin gagnleg viðbrögð fengið en til standi að tilkynna málið til barnaverndar. Einnig sé framundan fundur um málið með skólayfirvöldum á mánudag. Sjálfur er Kristján á ferðalagi en málið er í höndum barnsmóður hans og fleiri aðila. Hann hefur hins vegar leitað að eiganda símanúmersins sem hann fékk textaskilaboðin úr í undanfara ofsóknanna, en símtölin í móðurina og börnin eru úr leyninúmeri. Um er að ræða notanda hjá Vodafone en viðkomandi er að öðru leyti ókunnur, enn sem komið er.
Kristján undirstrikar að hann vilji ekki fordæma börnin, augljóslega sé um að ræða uppátæki sem hafi farið úr böndunum. „En það þarf að grípa inn í þetta og stöðva þessa hegðun. Ég er reyndar ekki í vafa um að það verði gert. Það er allt farið í gang núna.“