Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt mann á fertugsaldri fyrir vörslu á teiknuðum myndum og myndskeiðum sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt. Maðurinn, Sigmundur Þórir Jónsson, var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir brot sín. Þá var Sigmundi einnig gert að sæta umsjón og fyrirmælum hjá úrræðinu Taktu skrefið eins og ástæða þykir til og ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Um er að ræða úrræði á vegum Neyðarlínunnar þar sem hópur sálfræðinga sem aðstoðar fólk sem hefur áhyggjur af af kynferðislegri hegðun sinni eða hefur beitt kynferðisofbeldi.
Í dómnum kemur fram að barnaklámsefnið, alls 2.230 teiknaðar myndir og 42 teiknuð myndskeið, hafi verið haldlagt við húsleit heima hjá Sigmundi árið 2019 þar sem hald var lagt á Samsung Galaxy-síma hans og Toshiba Satelite fartölvu hans. Hann hafi skýlaust játað brot sín en það var metið til refsilækkunar hversu lengi málið hafi verið í vinnslu hjá lögreglu.
Þá kemur fram að þrátt fyrir að um sé að ræða teiknaðar myndir og myndskeið ber að líta til þess að markmið refsinga fyrir vörslur á efni af þessu tagi, sem sýnir börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, sé að styrkja vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun, meðal annars, í tengslum við gerð slíks efnis. Efnið sé af afar grófu tagi og geti verið til þess að hvetja til brota gegn börnum þótt brotið sem slíkt beinist í reynd ekki að barni.