Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé.
Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. ISAL álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.
Sigríður Soffía útskrifaðist með BA-gráðu frá samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2009. En hún var við skiptinámi í einum fremsta sirkusskóla Evrópu, Ecole Superior des Arts de Cirque í Brussel. Hún dansaði með Shalala flokki Ernu Ómarsdóttur frá 2009-2014. Sigríður Soffía hefur unnið bæði sem dansari og danshöfundur í fjölmörgum uppfærslum, bæði hérlendis sem erlendis. Hún útskrifaðist með MBA gráðu frá HR 2021 og er með nýsköpunarfyrirtækið Eldblóm.
Verk hennar Svartar fjaðrir opnaði 29. Listahátíð Reykjavíkur á Stóra sviði Þjóðleikhússins í maí 2015. Svartar fjaðrir hlaut þrjár tilnefningar til Grímunnar; Sproti ársins, Búningahönnuður ársins og Tónlist ársins.
Sigríður Soffía er einna þekktust fyrir flugeldasýningar sínar á menningarnóttum Reykjavíkur en árið 2013 hlaut hún Menningarverðlaun DV fyrir Eldar sem var fyrsta flugeldaverkið hennar. Í framhaldi var henni boðið að gera opnunarflugeldasýningu La Mercé borgarhátíðar Barcelona þar sem flugeldasýningu hennar Northern Nights var skotið upp fyrir 2 miljónir manna frá Barceloneta ströndinni.
Síðustu ár hefur Sigríður skoðað mismunandi leiðir til að miðla hreyfingu, að semja dans fyrir 3 tonn af flugeldum, sungið eitt aðalhlutverka Red Waters óperu í Frakklandi, dansað á Paris Fashion week, samið dans fyrir alþjóðlegar auglýsingar og unnið til verðlauna fyrir leikstýringu á dansstuttmyndum. Eldblóm – dansverk fyrir flugelda og flóru byrjaði sem dansverk, varð flugeldasýning sem varð að blómainnsetningu sem núna er orðið að drykk – fljótandi danssmíðar í flösku. Nú í mars gefur hún út sína fyrstu ljóðabók og dansverk verður frumsýnt á stóra sviði þjóðleikhússins þann 19.april „Til hamingju með að vera mannleg“ ásamt 6 leikkonum og dönsurum.
Í umsögn dómnefndar segir að segir að Sigríður sé sannur fulltrúi listamanna sem vinna þvert á lönd og viðföng og bera verk hennar vitni um öflugan sköpunarkraft þar sem sífellt er leitað á ný viðmið og ókunnar lendur.
Í dómnefnd Íslensku bjartsýnisverðlaunanna eru Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif Gunnarsdóttir og Rannveig Rist.