fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Ný rannsókn Stígamóta kynnt – Helmingur brotaþola vændis á örorku, í endurhæfingu eða veikar

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 22. september 2022 16:51

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brotaþolar vændis hafa í 50% tilvika ekki lokið frekari menntun en grunnskólaprófi og voru í 50% tilvika á örorku, í endurhæfingu eða veikar. Þetta hefur gríðarleg áhrif á möguleika þessa hóps til að afla tekna og má gera ráð fyrir sambandi á milli skertra afkomumöguleika og þess að neyðast í vændi.

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á vegum Stígamóta sem var kynnt í dag.

Um er að ræða greiningu á tölfræðigögnum sem safnað er meðal þeirra sem sóttu þjónustu samtakanna vegna kynferðisofbeldis á árunum 2013-2021. Borinn var saman hópur kvenna sem voru brotaþolar vændis við aðra hópa kvenna sem ýmist höfðu upplifað sifjaspell, nauðgun eða bæði.

„Niðurstöðurnar sýna glögglega hvernig vændi er bæði neyðarráð kvenna sem eru í erfiðri félagslegri stöðu og hve alvarlegar og djúpstæðar afleiðingar vændis eru á líkamlega og andlega líðan brotaþola í kjölfarið,“ segir í tilkynningu frá Stígamótum.

Hér eru frekari upplýsingar úr skýrslunni:

60,7% þeirra kvenna sem eru brotaþolar vændis hafa gert sjálfsvígstilraun og eru miklu líklegri en brotaþolar annars kynferðisofbeldis til að hafa gert sjálfsvígstilraunir eða hafa hugleitt sjálfsvíg.

Brotaþolar vændis eru mun líklegri en brotaþolar annars kynferðisofbeldis til að kljást við sjálfskaða, átröskun og líkamlega verki.

Brotaþolar vændis sem sækja þjónustu Stígamóta hafa í 92% tilvika orðið fyrir öðru kynferðisofbeldi auk vændisins. 80% voru yngri en 18 ára þegar þau voru fyrst beitt kynferðisofbeldi.

Brotaþolar vændis hafa margir orðið fyrir grófu kynferðisofbeldi á lífsleiðinni. 76% hefur verið nauðgað og tæp 46% verið beittar sifjaspellum. Konur sem eru brotaþolar vændis eru mun líklegri en aðrir brotaþolar kynferðisofbeldis til hafa orðið fyrir hótunum, líkamsmeiðingum og að vopni sé beitt af hendi geranda kynferðisofbeldis. Rúm 25% hafa orðið fyrir hópnauðgun og rúm 26% fyrir lyfjanauðgun.

Þær níu konur sem leituðu til Stígamóta á tímabilinu vegna vændis en voru ekki brotaþolar annars kynferðisofbeldis glímdu nánast allar við lélega sjálfsmynd, skömm, kvíða, depurð og erfið tengsl við maka og vini.

Mál brotaþola vændis voru líklegri til að hafa orðið að barnaverndarmálum en mál brotaþola annars kynferðisofbeldis. Þá er ekki endilega um að ræða vændisbrotin heldur líklegra að um annað kynferðisofbeldi sé að ræða. Þannig höfðu mál sem tengdust 24% gerenda kynferðisofbeldis gegn brotaþolum vændis verið vísað til barnaverndar. Jafnframt var þessi hópur líklegri til að hafa kært kynferðisofbeldi til lögreglu en hópar annarra brotaþola.

Hér má finna samantekt úr skýrslunni með myndum og töflum. Heildarskýrslan úr rannsókninni kemur á netið á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala