fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og ólöglega dvöl á Schengensvæðinu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 16. ágúst 2022 05:01

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn ökumaður var handtekinn, á kvöld- og næturvakt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslu fíkniefna. Einnig leikur grunur á að hann dvelji ólöglega á Schengensvæðinu og er verið að rannsaka málið.

Einn ökumaður til viðbótar var handtekinn grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna og akstur án ökuréttinda.

Í austurhluta borgarinnar var tilkynnt að þrír væru að ráðast á einn. Tilkynnandi sá þrjá stráka ráðast á þann fjórða. Enginn var á vettvangi þegar lögreglu bar að og enginn gaf sig fram.

Tveir ökumenn voru kærðir. Annar fyrir að aka sviptur ökuréttindum og hinn fyrir akstur án ökuréttinda en hann hefur ekki öðlast slík réttindi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu