Tveir ökumenn voru handteknir grunaðir um að vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Annar þeirra var vægast sagt ósamvinnuþýður og veittist að lögreglumanni á vettvangi. Ökumaðurinn var vistaður í fangageymslu.
Ofurölvi kona var flutt á bráðamóttöku úr Miðborginni til aðhlynningar en hún var meðvitundarlítil.
Maður var kærður fyrir eignaspjöll en hann er grunaður um að hafa brotið rúðu í verslun í Miðborginni.