Á sjötta tímanum í gær var maður staðinn að þjófnaði úr verslun í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Hann hafði stolið þremur ilmvatnsglösum. Maðurinn sagðist hafa haldið að hann mætti taka þessi glös því um prufur væri að ræða og sagði að það mætti í heimalandi hans. Lögreglan gerði skýrslu um málið.
Tveir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis.
Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur en hraði bifreiðar hans mældist 107 km/klst á Kringlumýrarbraut en leyfður hámarkshraði þar er 80 km/klst.
Í Hafnarfirði var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr geymslu í fjölbýlishúsi. Þaðan var verkfærum og fleiru stolið.
Í Grafarvogi var ölvaður maður handtekinn á öðrum tímanum í nótt. Hann var að ónáða fólk og fór ekki að fyrirmælum lögreglunnar. Hann var vistaður í fangageymslu.