Allir þátttakendurnir voru með ákveðna tegund endaþarmskrabbameins. Fólkið fékk lyfið á þriggja vikna fresti í sex mánuði. Ekki er annað að sjá en að lyfir hafi gert út af við krabbameinið og voru aukaverkanir þess mjög litlar.
Vísindamenn segja þó að enn sé of snemmt að fullyrða að þátttakendurnir séu algjörlega læknaðir. En rannsókn á þeim eftir einu ári eftir að lyfjameðferðinni lauk sýndi engin merki um krabbamein.
Það er ekki til að draga úr ánægju lækna og þátttakenda að sáralitlar aukaverkanir fylgdu notkun lyfsins. Það er mikil breyting frá því sem er þegar hefðbundin meðferð er notuð því þá þarf stundum að gera skurðaðgerð, nota lyfjameðferð og geislameðferð. Þetta getur skaddað ristilinn og gert fólk ófært um að stunda kynlíf.
New York Times hefur eftir Dr. Luis Diaz, einum aðalhöfundi rannsóknarinnar, að hann telji að þetta sé í fyrsta sinn sem árangur af þessu tagi hafi náðst í sögu krabbameins. „Þetta er mjög spennandi. Ég tel að þetta sé stórt skref fram á við fyrir sjúklinga,“ sagði hann og bætti við að hann telji þetta aðeins vera toppinn á ísjakanum.
Samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla þá eru næstu skref væntanlega að gera fleiri tilraunir með lyfið þar sem fleiri krabbameinssjúklingar taka þátt.