Þetta segir hann í myndbandi á Telegram. Rússneskar hersveitir nálgast nú borgirnar Sjevjerdonetsk og Lysytjansk en þær eru hernaðarlega mikilvægar vegna legu sinnar. Hajdaj segir í myndbandinu að Rússar séu einfaldlega að eyðileggja borgirnar því þeir láti sprengjum rigna yfir þær daglega.
Níu manns létust í sprengjuárás Rússa á Kharkiv, næst stærstu borg Úkraínu, í gær en Rússum hefur ekki tekist að ná henni á sitt vald. Fimm almennir borgarar létust í árásum Rússa í suðurhluta Donetsk í gær að sögn héraðsstjórans.
Bardagar í Donbas hafa farið harðandi síðustu daga og virðast Rússar vera að bæta í sóknarþungann. Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, hefur látið óánægju sína í garð Vesturlanda í ljós á síðustu dögum og segir að þau útvegi Úkraínumönnum ekki vopn nægilega hratt. Hann sagði Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, að þörf væri á þungavopnum „eins fljótt og hægt er“.
Hershöfðingi í úkraínska hernum sagði í gær að rússnesku hersveitirnar hafi nú undirtökin í Luhansk en Úkraínumenn verjist enn.