Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, heimsótti Ísland heim á dögunum. Þann 17. maí síðastliðinn lenti einkaflugvél frumkvöðulsins, sem er einn ríkasti maður heims, á Akureyrarflugvelli og þaðan lá leiðin í þyrlu á lúxushótelið Depla sem er vinsæll áningarstaður ríka og fræga fólksins.
Fyrir klukkustund síðan birti Zuckerberg síðan fjórar myndir frá heimsókninni með yfirskriftinni. „Photo dump from the Icelandverse “. Um er að ræða ansi mikla landkynningu en færslan hefur fengið yfir 150 þúsund „like“ á örskömmum tíma.
Með Icelandverse vísar Zuckerberg til velheppnaðrar markaðsherferðar Inspired by Iceland en þar var hent gaman að hinum nýkynnta Metaverse sem Zuckerberg sjálfur kynnt til leiks og gestir boðnir velkomnir til „Icelandverse“. Í herferðinni, sem má sjá hér fyrir neðan, sló Jörundur Ragnarsson eftirminnilega í gegn sem Zuckerberg sjálfur og greinilegt að auðkýfingurinn hefur haft gaman af uppátækinu.
Á myndunum sem Zuckerberg birti má sjá að hann og eiginkona hans, Priscilla Chan, hafa skellt sér í heliskiing á Tröllaskaga og haft það notalegt í heitri laug. Sennilega má gera ráð fyrir að þetta sé ekki síðasta heimsókn Zuckerberg til Icelandverse.