Af þeim sökum þekkir hann nokkuð til heilsufars Pútíns. Í nýju hlaðvarpi segir Stone að Pútín hafi áður verið með krabbamein. Metro skýrir frá þessu.
Miklar vangaveltur hafa verið um heilsufar Pútíns allt frá því að hann fyrirskipaði rússneska hernum að ráðast inn í Úkraínu aðfaranótt 24. febrúar. Hefur því verið velt upp að hann sé hugsanlega með krabbamein eða Parkinsonssjúkdóminn.
„Munið að Pútín var með krabbamein. En hann hefur einnig verið einangraður vegna COVID,“ sagði Stone við þáttastjórnandann Lex Fridman.
Hvað varðar hugsanlegan misreikning Pútíns á innrásinni í Úkraínu sagði Stone að hann hafi „kannski misst sambandið, sambandið, við fólk“.
Hann sagði óljóst hvort Pútín hafi fengið réttar leyniþjónustuupplýsingar.
Ummæli Stone um krabbamein Pútíns vekja upp hugleiðingar um hvort krabbameinið hafi tekið sig upp á nýjan leik.