fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sölvi vill sameina bæjarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – „Þetta er stór ákvörðun en alls ekki galin“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 6. apríl 2022 15:00

Sölvi vill sameina bæjarfélögin á höfuðborgarsvæðinu - Myndin er samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef lengi spurt sjálfan mig að því hvort ekki sé löngu tímabært að Reykjavík sameinist bæjarfélögunum hér í kring. Þá á ég við Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð.“

Svona hefst pistill sem ráðgjafinn Sölvi Breiðfjörð skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag. Í pistlinum veltir Sölvi því fyrir sér hvort það sé ekki kominn tími á að bæjarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sameinist í eina stóra borg. „Það eru eflaust margir sem telja mig galinn að fara út í þessa umræðu þar sem fólk þarf oftast að vera svo fastheldið á sitt bæjarfélag og það kemur ekkert annað til greina en að þeirra bæjarfélag verði eins og það hefur alltaf verið,“ segir Sölvi.

„Það er eins og margir haldi að með sameiningu hverfi bæjarfélagið þeirra, eins og samfélagið þurrkist upp og hverfi…… það er nú ekki svo, við munum enn búa á sama stað, með sömu nágrannana, skólann, leikskólann og svo má lengi telja, þetta verður allt þarna áfram.“

„Þetta er stór ákvörðun en alls ekki galin“

Sölvi hefur bæði búið í Reykjavík en einnig í Kópavogi og í Hafnarfirði. „Mér hefur liðið vél á öllum stöðunum en vissulega eru miklar breytingar á útgjöldum eins og fasteignagjöld, sorphirðan, hiti, vatn, þjónusta við fatlaða, snjómokstur, skólagjöld og svo framvegis,“ segir hann.

„Þessir hlutir eru svosem breytilegir og við sameiningu getum við lagað þetta allt til muna svo að allir geta notið góðs af og setið við sama borð.“

Í pistlinum bendir Sölvi á að margt muni breytast með sameiningunni. Hann segir að bæjarfélögin muni þó líta út eins og áður en myndu fara frá því að vera bæjarfélög yfir í að vera stórborg með mörgum hverfum og úthverfum. „Ég geri mér fulla grein fyrir því að þetta er stór ákvörðun en alls ekki galin. Þetta er ekkert öðruvísi en sameining smærri sveitarfélaga úti á landi sem svo margir hafa talað um,“ segir hann.

„Það er einmitt verið að sameina þau til að ná hagræðingu í rekstri sem og til að bæta alla almenna félagsþjónustu. Markmið sameiningar er að ná hagræðingu í rekstri og geta boði betri félagslegri þjónustu sem og fleira.“

„Mikil hagræðing“ í einni stórborg

Sölvi segir þá að ávinningur sameiningar sé meiri hagræðing. „Yfirbyggingin minkar og þar af leiðandi minni launakostnaður og launatengd gjöld til Borgarstjórnar/Bæjarstjórnar. Allur almennur rekstur lækkar. Betri þjónusta við fatlaða. Mikil hagræðing í rekstri leikskóla sem og grunnskóla. Í þessum málum er hagstæðara að vera með eina stórborg en margar litlar einingar. Reykjavík er og verður höfuðborg Íslands og ef við horfum á þetta úr lofti, þá sjáið þið öll þessi bæjarfélög saman í einni þéttri byggð,“ segir hann.

Undir lok pistilsins spyr Sölvi hvort það væri ekki bara fínt að sameina öll bæjarfélögin í „eina stóra Reykjavík“ með þá aðeins stærri borgarstjórn. „Þá myndum við sameina yfirbyggingu allra fimm bæjarfélagana í eina Borgarstjórn. Yfirbyggingin myndi minka umtalsvert,“ segir hann.

„Á heildina litið held ég að ávinningurinn væri mun meiri en minni og því hvet ég ríkið til að stuðla að sameiningu bæjarfélagana við Borgina. Ég þykist vita að viðræður kæmu líklega aldrei frá bæjarfélögunum þar sem það vill enginn missa spón úr aski sínum og missa jafnvel starfið sem þeir eru í.“

Þá segir hann að það þurfi að horfa á heildarmyndina í þessu samhengi og að hagsmunir fárra aðila þurfi að víkja fyrir fjöldanum. „Ég vil benda á að ég er enginn sérfræðingur og þarf ekki alltaf að hafa rétt fyrir mér en svona sé ég þetta og væri gaman að vita hvort einhverjir væru á sama máli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi