Rússneska olíufélagið Surgutneftegas bauð tvo skipsfarma af hráolíu til sölu á mánudaginn en enginn vill kaupa þá og skiptir þá engu að um olíu frá Úral er að ræða en það er besta hráolían frá Rússlandi.
Jótlandspósturinn segir að vikuna áður, áður en ráðist var inn í Úkraínu, hafi kaupendur verið til staðar en hafi boðið svo lágt verð að Surgutneftegas vildi ekki selja hana.
Rússar standa nú frammi fyrir því að þrátt fyrir að viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum hafi ekki enn verið beint að orkugeiranum þá vilja kaupendur ekki koma nálægt þeim þessa dagana. Það sama gildir um banka, tryggingafélög og skipaútgerðir.
Þetta hefur orðið til þess að verð á olíu hefur hækkað mikið og í gær fór verðið á Norðursjávarolíu yfir 110 dollara á tunnuna en svo hátt hefur það ekki verið síðan 2014.