Úkraínumenn segjast hins vegar hafa fellt rúmlega 6.000 rússneska hermenn. En hvað er rétt í þessu? Erfitt er að sannreyna þessar tölur og taka verður þeim með ákveðnum fyrirvara.
Líklegt má þó telja að fleiri en 498 rússneskir hermenn hafi fallið en færri en 6.000. Báðir aðilar ýkja líklega tölurnar. Hjá Rússum er það mikilvægt fyrir Pútín og hans fólk að „fegra“ tölurnar til að auka ekki á óvinsældir stríðsrekstrarins heima fyrir. Fyrir Úkraínumenn skiptir máli að hafa tölurnar háar til að reyna að hafa sálfræðileg áhrif á rússneska hermenn og rússneskan almenning og auka á andúð Rússa við stríðið.
Gennadij Gudkov, fyrrum þingmaður á rússneska þinginu, segir að 112 lík rússneskra hermanna hafi verið flutt til Kemerovo sem er borg í Síberíu. Það bendir til að mannfallið sé mun hærra en rússneska varnarmálaráðuneytið hefur viðurkennt.
Heimildarmenn á Vesturlöndum telja líklegt að um 2.000 hermenn hafi fallið hjá hvorum stríðsaðila um sig. Ef það er rétt þá er það mikið mannfall í samanburði við fyrri stríð Rússa.