fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Erni var útskúfað úr Vottum Jehóvum og missti samband við dóttur sína – „Skelfileg birtingamynd mannfyrirlitningar og mannvonsku“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 19. mars 2022 10:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Örn Svavarsson skrifar áhrifamikla aðsenda grein á Vísi í morgun þar sem hann greinir frá reynslu sinni af Vottum Jehóva og útskúfun sinni úr trúfélaginu þegar hann var kominn til vits og ára. Hann segir  trúboða á vegum Vottanna hafa hitt á móður sína á viðkvæmum tíma í hennar lífi og hún hafi gleypt við boðskapnum.

„Móðir mín, þýsk kona sem tapað hafði öllu sínu, heimili sínu tvisvar í loftárásum, bróður og föður á vígvellinum, sem og öðrum nákomnum í brjálæði heimstyrjaldarinnar, kom til Íslands eftir stríð, kynntist manni eftir tveggja ára dvöl, giftist honum og eignuðust þau tvö börn. Hjónabandið beið skipbrot, því faðir minn blessaður tók flösku og fjárhættuspil fram yfir fjöldskyldu og eru mínar fyrstu æskuminningar úr braggahverfinu Kamp Knox. Þar bankaði Vottur Jehóva á dyr og fann konu í tilvistarkreppu sem gleypti við boðskap um nýjan og réttlátan heim. Súrrealístískar kenningar þessara trúarbragða voru minn sannleikur fram eftir ævi,“ skrifar Örn.

Á þrítugsaldri hafi hann farið að efast um trúarbrögðin sem leiddi til þess að trúin hvarf með öllu og hann hætti í söfnuðinum. Í kjölfarið var honum útskúfað úr söfnuðinum og það tilkynnt á samkomu.

Satan stjórnar hinu veraldlega

„Vottur sem hættir að trúa á Jehóva og félag hans, afneitar jafnvel trúnni eða velur að lifa sínu lífi með öðrum hætti en samkvæmt reglum félagsins, verður rekinn. Viðkomandi er útskúfað. Fólk er smánað. Útskúfun þar sem öllu þínu fólki, æskuvinum jafnt sem frændfólki, nánustu fjölskyldu, jafnvel systkinum, foreldrum og börnum er bannað að hafa við þig nokkurt samneyti, gengur þvert á öll lýðræðisleg gildi og er skelfileg birtingarmynd mannfyrirlitningar og mannvonsku. Þetta er andstyggilegt form refsingar, andlegt ofbeldi í sinni verstu mynd,“ skrifar Örn.

Hann lýsir því hvernig Vottum er bannað að kjósa og taka þátt í stjórnálum á grundvelli þess að Satan sjálfur er stjórnandi alls hins veraldlega og óguðveldilega á þessari jörð. Þá bendir hann á óhugnalega staðreynd varðandi afstöðu safnaðarins til blóðs og blóðgjafa.

„Þeir sem láta lífið undir slíkum kringumstæðum eru hafnir til skýjanna fyrir trúfesti sína og hollustu við himnaföðurinn. Alveg sérstaklega er börnum og unglingum hampað, sem fórna lífi sínu með þessum hætti, rétt eins og látnum hermanni sem veitt er orða eftir dauða sinn, fyrir frækilega framgöngu. Óhugnanlegt í þessu er að innan safnaðarins eru öldungar þjálfaðir í að „hjálpa“ sínu fólki til að standast þá freistingu að þiggja blóð, til að bjarga lífi sínu við svo krítískar aðstæður. Í mörgum löndum er forræðið yfir ósjálfráða börnum sem betur fer tekið af foreldrum undir slíkum kringumstæðum, til að þeir geti ekki komið í veg fyrir að lífi barns þeirra sé bjargað með blóðgjöf, sé á henni þörf.“

Þá segir bendir Örn á að hversu karlægt samfélag Votta sé og að margt í starfseminni brjóti jafnréttislög á óskammfeilinn hátt. Þá séu viðbrögð safnaðarins við samkynheigð beinlínis mannfjandsamleg.

Upplifa eigin útfararathöfn

„Samkvæmt Vottunum er samkynhneigð óguðleg, ósiðleg og beinlínis syndsamleg. Því lendir ungt fólk innan safnaðarins, sem opinberar samkynhneigð sína, ekki aðeins í þeim innri átökum sem hjá afar mörgum samkynhneigðum fylgir því að opinbera kenndir sínar fyrir fjölskyldu og vinum, heldur eru þeir kallaðir fyrir hina mannfjandsamlegu dómnefnd safnaðarins, sem útskúfar þeim úr því samfélagi sem þeir hafa alist upp í og klippa þar með á allar tengingar og samskipti við æskuvini, systkini, foreldra og alla þá aðra innan safnaðarins sem verið hafa félagslegt net þeirra. Ekki verður framhjá því litið að þegar heilt samfélag tekur sig saman um að leggja fæð á einn einstakling, þegar heill söfnuður fær fyrirmæli frá sínum andlegu leiðtogum um að hunsa einn úr sínum hópi með öllu, virða hann ekki viðlits frekar en að hann hefði aldrei verið til, þá eru slíkar öfgafullar aðgerðir á pari við einelti á hæsta stigi og hrópleg brot á mannréttindalögum. Dæmi eru um að ungt samkynhneigt safnaðarfólk sem opinberað hefur kynhneigð sína og verið útskúfað fyrir vikið, hafi fengið foreldra sína í sorglega kveðjuheimsókn með tertu til að eiga með þeim sína hinstu samverustund. Þessu hefur fólk líst svo, að það hafi upplifað þá stund sem eins konar útfararathöfn,“ skrifar Örn.

Hann segist fram að þessu hafa forðast að tjá sig opinberlega um Vottana af tillitsemi við elstu dóttur sína sem hefur kosið að fylgja söfnuðinum.

„Yndislega unga konu, sem hvers manns er hugljúfi, glaðvær og greiðvikin, en gallhörð á því að hafa ekkert samband við föður sinn, útskúfaðan útilegumanninn. Í þeirri umfjöllun sem nú á sér stað tel ég þó rétt að bæta minni rödd við umræðuna, til að vekja frekari athygli á ofríki og andlegu ofbeldi sem beitt er innan þessa „sannkristna“ safnaðar.“

Hér má lesa pistil Arnar í heild sinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi