fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Er vopnahlé í sjónmáli? – Báðir aðilar mun bjartsýnni en áður

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 14. mars 2022 08:20

Sendinefndir ríkjanna á fundi í Hvíta-Rússlandi í síðustu viku. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 08.30 að íslenskum tíma hefst fundur samninganefnda Rússa og Úkraínumanna um frið í Úkraínu. Um fjarfund verður að ræða að þessu sinni. Hóflegrar bjartsýni gætir nú hjá mörgum um að hugsanlega verði hægt að semja um vopnahlé og fleira tengt stríðinu en fulltrúar beggja aðila sögðu um helgina að þeir væru bjartsýnni en áður og að viðræðurnar hefðu þokast í rétta átt.

Þrátt fyrir það dró ekki úr árásum Rússa um helgina og létu þeir flugskeytum og stórskotliðsskothríð rigna yfir borgi og bæi og æfingasvæði úkraínska hersins nærri pólsku landamærunum.

Samninganefndir ríkjanna funduðu mikið um helgina í gegnum fjarfundabúnað. Mykhailo Podoliak, aðalráðgjafi Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseta, sagði í gær í samtali við hvítrússnesku fréttastofuna Belta viðræðunum hafi miðað áfram og að hugsanlega geti samninganefndirnar hist augliti til auglits í dag eða á morgun til að leggja lokahönd á friðarsamning.

Hann sagði að margar mismunandi tillögur væru uppi á borðinu, þar á meðal pólitískur samningur og það mikilvægasta af öllu: hernaðarsamningur. „Með því á ég við vopnahlé, formúlu fyrir vopnahlé og afturköllun herliðs,“ sagði hann.

Hann sagði jafnframt að búið væri að ræða öll málefni og nú sé verið að reyna að koma þeim saman í lagalega bindandi form.

Í myndbandi sem var birt á samfélagsmiðlum í gær sagði Podoliak að „Rússland hafi sýnt stöðu Úkraínu meiri skilning“ og að „viðræðurnar hafi færst á uppbyggilegra stig“.

„Kröfur okkar liggja fyrir. Þær eru mjög harðar. Meðal þeirra er afturköllun herliðs og vopnahlé. Þetta eru atriði sem við gefum ekki eftir,“ sagði hann.

Leonid Slutsky, aðalsamningamaður Rússa, var einnig bjartsýnn í samtali við rússnesku fréttastofuna RIA. Hann sagði að „góður árangur“ hafi náðst síðan viðræðurnar hófust og hann sagðist telja hugsanlegt að hægt verði að ljúka þeim fljótlega. Hann sagðist eiga von á að hægt verði að komast að sameiginlegri niðurstöðu og gera samning sem báðir aðilar geta skrifað undir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat