fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Aðstoðarlögreglustjóri í leyfi frá störfum eftir sálfræðiúttekt – Sögð taka „hárblásarann“ á undirmenn

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 8. desember 2022 15:03

Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs er komin í leyfi frá störfum í kjölfar þess að sálfræðistofa gerði úttekt hjá starfinu á ákærusviðinu. Frá þessu greinir Vísir.

Samkvæmt heimildum Vísis, sem ríma við þær heimildir sem DV hefur, hafa starfsmenn á ákærusviði leitað í önnur störf undanfarin ár meðal annars vegna erfiðra samskipta við Huldu. Vísir segir að fyrrverandi starfsmaður hafi sagt að ekki væri óþekkt að hún tæki „hárblásarann“ á undirmenn ef svo bæri við.

DV sendi fyrirspurn á Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra vegna málsins. Í svari lögreglustjóra segir:

„Embættið staðfestir að Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri, hefur óskað eftir breytingu á starfssviði sínu. Breytingin felur í sér að dagleg stjórn ákærusviðs verður undanskilin starfsskyldum hennar en að öðru leyti er hennar staða óbreytt. Fallist hefur verið á beiðnina en það er nú til skoðunar hvernig stjórnun sviðsins verði háttað til framtíðar. Staðgengill Huldu Elsu hefur nú þegar tekið við daglegri stjórn en að öðru leyti er starfsemi sviðsins óbreytt.

Embættið mun að öðru leyti ekki tjá sig um málefni einstakra starfsmanna.“

Halla svaraði ekki spurningum um áðurnefnda úttekt eða hvort ráðist hafi verið í úttektina fyrir eða eftir að Hulda Elsa var skipuð aðstoðarlögreglustjóri í júní síðastliðnum.

Samkvæmt skipuriti embættisins heyrir ákærusvið, sem aðstoðarlögreglustjóri og staðgengill lögreglustjóra fer fyrir. Undir sviðið heyra ákærusvið, 1,2 og 3.

Halla Bergþóra svaraði því ekki til hvernig háttað yrði með störf Huldu þegar hún þarf að starfa sem staðgengill lögreglustjóra.

Aðstoðarlögreglustjórar hjá embættinu eru tveir. Á móti Huldu er Ásgeir Þór Ásgeirsson, en bæði voru þau skipuð í embættið í lok júní.  Hulda er lögmaður að mennt og hefur verið sviðsstjóri ákærusviðs lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2016. Hún hefur frá 2017 starfað sem staðgengill lögreglustjóra og hefur í tvígang starfað sem settur lögreglustjóri. Samkvæmt matsnefnd sem fór yfir hæfni umsækjenda um starfið taldist Hulda mjög hæf til að hljóta skipun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum