fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Veitti húsráðanda áverka – Réðst á öryggisvörð

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 21. nóvember 2022 05:10

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á tólfta tímanum í gærkvöldi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna ölvaðs manns sem var kominn inn í húsnæði í vesturhluta borgarinnar. Hann vildi ekki yfirgefa húsið þegar húsráðandi reyndi að vísa honum út. Kom þá til átaka og hlaut húsráðandi skurð á enni. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á bráðadeild. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Skömmu fyrir miðnætti var tilkynnt um líkamsárás á veitingastað í Breiðholti. Þar hafði maður í annarlegu ástandi ráðist á öryggisvörð sem hafði verið kallaður á vettvang til að vísa honum út. Maðurinn brást illa við því og réðst á öryggisvörðinn. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Í Hlíðahverfi hafði lögreglan afskipti af manni einum á níunda tímanum í gærkvöldi. Hann var í annarlegu ástandi og var sagður hafa brotið rúðu. Hann neitaði því í fyrstu en viðurkenndi síðan að hafa kastað einum steini en sagðist ekki muna hvort eitthvað hefði brotnað.

Á tíunda tímanum vildi maður, sem var í annarlegu ástandi, ekki yfirgefa hótel í Hlíðahverfi. Hann fór ekki að fyrirmælum lögreglu og var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Í Miðborginni var tilkynnt um innbrot í geymslur fjölbýlishúss. Þar hafði verið farið inn um glugga og reiðhjóli og fleiri munum stolið.

Skömmu fyrir miðnætti var tilkynnt um þjófnað á farangri ferðamanns á hóteli í Hlíðahverfi. Tveimur ferðatöskum var stolið frá honum. Í þeim voru meðal annars vegabréf og fatnaður.

Afskipti voru höfð af tveimur mönnum sem eru grunaðir um vörslu fíkniefna og einum sem er grunaður um vopnalagabrot.

Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum áfengis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala