Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Fram kemur að tilkynnt verði um nýja sýnatökutíma í dag eða á morgun á heimasíðu og fésbókarsíðu Heilbrigðisstofnunar Austurlands og í tilkynningu frá aðgerðarstjórn á Austurlandi.
Þeir sem hafa einkenni COVID-19 smits eru beðnir um að halda sig heima og forðast umgengni við aðra.
Samkvæmt veðurspá er spáð norðvestan 20-28 m/s og snörpum vindhviðum við fjöll. Víða verður skafrenningur með lélegu skyggni og éljum. Mjög slæmt ferðaveður verður í dag og hvetur lögreglan íbúa til að huga að lausamunum.