Rólegt var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Helst bar til tíðinda að hundur beit barn en enga áverka var að sjá á barninu. Tveir voru handteknir og vistaðir í fangageymslu en þeir eru grunaðir um innbrot.
Tveir ökumenn voru handteknir grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna.
Tilkynnt var um tvö umferðaróhöpp. Enginn slasaðist en í öðrum málinu er annar ökumaðurinn grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.