Á Vestfjörðum eru Þröskuldar, Dynjandisheiði og Steingrímsfjarðarheiði ófærar.
Á Vesturlandi eru Brattabrekka og Holtavörðuheiði lokaðar.
Á Norðurlandi eru hálkublettir á flestum leiðum í Húnavatnssýslum og Skagafirði en hálka og snjóþekja á vegum í Eyjafirði og þar fyrir austan. Öxnadalsheiði og Víkurskarð eru lokuð vegna ófærðar.
Á Norðausturlandi er hálka víðast hvar og snjóþekja á fáfarnari leiðum. Dettifossvegur er lokaður.
Á Austurlandi er hálka á helstu leiðum og snjóþekja á mörgum öðrum leiðum. Snjóþekja og snjókoma eru á Fjarðarheiði og Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar.
Á Suðausturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum.
Á Suðurlandi er Suðurlandsvegur lokaður frá Markarfljóti að Vík vegna veðurs.