fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Leikskólastjóri Sælukots svarar harðri gagnrýni – „Kynna sér málin áður en farið er í skotgrafirnar“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 9. september 2022 17:30

Leikskólinn Sælukot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á miðvikudag birtist hörð gagnrýni í garð leikskólans Sælukots í aðsendri grein sem birtist hjá Vísi. Þar rituðu fyrrverandi leikskólastóri, fyrrverandi starfsmenn og móðir barns að leikskólinn sé rekinn af sérstrúarsöfnuðinum Ananda Marga sem hafi í gegnum tíðina verið bendlaður við hryðjuverk víða um heim. Leikskólinn greiði út mikinn arð þó svo að leikskólastarfið sé í miklu fjársvelti og fyrir liggi tugir frásagna áhyggjufullra starfsmanna og foreldra sem nái allt að 10 árum aftur í tímann.

„Við höfum bent á að leikskólastarfið stenst engar þær kröfur sem gerðar eru til leikskóla á Íslandi. Má þar nefna að starfsfólk er nær undantekningalaust án fagmenntunar og er sömuleiðis alltof fáliðað, sérkennsla er engin, viðbrögð rekstrarstjórans við meintu kynferðisofbeldi gagnvart barni voru mjög ófagmannlegur og aðbúnaður barna er slæmur almennt á leikskólanum.“ 

Þá var í greininni gagnrýnt að þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar hafi borgin ekki brugðist við stöðunni.

Sjá einnig: Sláandi frásagnir um starfsemi leikskólans Sælukots – „Hvernig stendur á því að svona sé leyft að viðgangast á Íslandi?“

Leikskólastarf í landinu á undir högg að sækja

Elín Halldórsdóttir, leikskólastjóri Sælukots, varar nú gagnrýninni í pistli sem hún birti hjá Vísi í dag.

„Ég undirrituð hef þurft að lesa greinar og hlusta á viðtöl í fjölmiðlum síðustu 2 daga þar sem fram koma ótrúlegustu rangfærslur um skólastarf leikskólans Sælukots sem á að baki 46 ára starf.https://www.visir.is/g/20222308021d/leik-skola-born-hofd-ad-fe-thufu-undir-hlifi-skildi-reykja-vikur-borgar

Á sama tíma og leikskólastarf í landinu á undir högg að sækja þar sem ekki er borin nógu mikil virðing fyrir starfinu og laun yfirleitt undir eða í meðallagi miðað við aðrar greinar blása fjölmiðlar til stórsóknar á lítinn einkarekinn leikskóla undir yfirskini aðsendrar greinar frá 3 fyrrverandi starfsmönnum og einu fyrrverandi foreldri.“

„Börnin eru orðin að þrælum og starfsfólkið allt er ófaglegt og örugglega með hor í nös“

Elín segist síðustu daga hafa tekið við símtölum frá foreldrum fyrrverandi leikskólabarna í Sælukoti sem segjast harma „þessa hræðilegu umfjöllun af því að hún samrýmist ekki þeirra reynslu en einnig hef ég þurft að svara áhyggjufullum foreldrum.“

Vissulega geti uppbyggileg gagnrýni verið að hinu góða, en enginn vilji fá „bylgju af uppspuna og ósannindum yfir sig.“

„Ég hef þurft að hlusta á það í útvarpinu að enginn faglegur leikskólastjóri starfi við skólann. Að skólinn tengist hryðjuverkasamtökum, að skólavistin jafnist á við fangabúðir svo eitthvað sé nefnt. Hér er vegið að litlum skóla með alþjóðlega sögu og alþjóðlega nemendur og starfsfólk með ótrúlegum hætti. Rekstrarstjóri leikskólans sem er nunna er nú orðin hryðjuverkamaður í íslenskum fjölmiðlum og stóreignakona. Börnin eru orðin að þrælum og starfsfólkið allt er ófaglegt og örugglega með hor í nös.

Vegið er að starfsumhverfi lítilla barna sem eðlilega geta hvorki staðfest né upplýst um það sem fleygt er í fjölmiðla og frænkur og frændur setja heilu barnafjölskyldurnar í geðshræringu eftir stóryrtar tröllasögur þekktra fjölmiðla.“

„Kynna sér málin áður en farið er í skotgrafirnar“

Elín segir að líklega komi þessi umræða sér vel fyrir borgaryfirvöld sem standi nú í baráttu við foreldra ungra barna sem hvergi fá leikskólapláss, þ.e. að nú sé athyglinni beint á einn lítinn leikskóla með „útlönskum“ börnum.

„Þá geta þau bara haldið áfram að nota borgarsjóð í pálmatré og bragga í friði.

Það mál sem fjallað hefur verið mikið um í miðlunum og tengdist áreiti og nefnt er í greininni umtöluðu fór í gegnum eðlilegt ferli í kerfinu lögreglu, barnavernd og eftirlitsaðila frá borginni og var afgreitt án ákæru.“

Greinin sem hafi birst á miðvikudag sé full af rangfærslum.

„Þess ber að geta að 3 af þeim 4 sem rita greinina eru fyrrverandi starfsmenn leikskólans. Einn þeirra lýsti brottrekstri sínum frá störfum vel í Bylgjuviðtali nýverið þar sem hann kvaðst ekki hafa staðið sig. Þar með er nokkuð ljóst að hér hafa siðareglur starfsfólks skóla verið margbrotnar á ótrúlegan hátt af þessum „fullkomlega faglegu” greinarriturum.

Sem Leikskólastjóri Sælukots bið ég alla þá sem upphafa stóryrði eða rita eða tala í fjölmiðlum um leikskólann Sælukot og starfsumhverfi lítilla barna að sýna litlum börnum og þeirra starfsumhverfi tilhlýðilega virðingu og kynna sér málin áður en farið er í skotgrafirnar. Ást og friður.“

Sjá einnig:

Starfsmaður leikskólans Sælukots kærður fyrir kynferðisbrot gegn barni – Amman segir barnið hafa lært kynferðislega hegðun af manninum

Dóttir hennar kom grátandi af Sælukoti – Rekstrarstjórinn stóð með starfsmanninum því „hann grét svo mikið þegar hún talaði við hann“

Fyrrverandi leikskólastjóri sakar lögmann Sælukots um lygar – Andlegt ofbeldi, mannekla og vanræksla á börnum

Lögmaður Sælukots sendir frá sér yfirlýsingu í skugga alvarlegra ásakana

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu