Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur þetta eftir Þorkeli Ágústssyni, rannsóknastjóra flugsviðs hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Hann sagði að sama ferli hefði verið í þessari rannsókn og öðrum sem nefndin tækist á við og sé hún ekki umfangsmeiri en reiknað var með.
Slysið varð 3. febrúar en talið er að vélin hafi snertilent og ísinn brotnað undan henni.
Þegar ekkert spurðist til vélarinnar hóst víðtæk leit að henni.
Lík þeirra fjögurra sem voru í vélinni náðust á land 10. febrúar og vélin þann 22. apríl.