fbpx
Sunnudagur 20.júlí 2025
Fréttir

Segja að Bandaríkin hafi aðstoðað Úkraínumenn við að drepa rússneska hershöfðingja

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. maí 2022 05:45

Konstantin Zizevsky er meðal þeirra rússnesku herforingja sem hafa fallið í Úkraínu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með mikilli leynd hafa Bandaríkjamenn látið Úkraínumönnum upplýsingar í té sem hafa orðið til þess að þeir hafa getað drepið marga rússneska hershöfðingja.

New York Times skýrði frá þessu í nótt og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum að Bandaríkjamenn hafi með mikilli leynd látið Úkraínumönnum upplýsingar í té sem hafi gert þeim kleift að drepa rússneska hershöfðingja.

Blaðið segir að upplýsingunum hafi verið deilt í rauntíma og hafi verið hluti af leynilegu verkefni. Fengu Úkraínumenn upplýsingar í rauntíma um hreyfingar rússneska hersins í Úkraínu. Meðal þessara upplýsinga eru upplýsingar um hreyfanlegar stjórnstöðvar Rússanna þar sem hershöfðingjar halda sig oft.

Þessi frétt New York Times bætist við fleiri afhjúpanir af svipuðu tagi sem hafa komið fram síðustu daga um þátttöku Bandaríkjanna í stríðinu í Úkraínu. Hafa heimildarmenn innan stjórnkerfisins og hersins skýrt frá því að Bandaríkin taki mun meiri þátt í stríðinu en áður hefur verið skýrt frá.

Meðal annars hefur verið skýrt frá því að Bandaríkjamenn hafi látið Úkraínumönnum upplýsingar í té sem gerðu þeim kleift að færa flugskeytaskotpalla sína til áður en Rússar gerðu árásir á þá.

Úkraínumenn segjast hafa drepið 12 rússneska hershöfðingja og hefur það komið mörgum hernaðarsérfræðingum á óvart að svo margir hershöfðingjar hafi fallið í stríðinu. Ekki er þó vitað hversu margir þeirra voru drepni á grunni upplýsingar frá Bandaríkjamönnum.

Þessi frétt New York Times kemur á mjög viðkvæmum tíma fyrir Bandaríkin. Rússar hafa varað við því að fleiri lönd geti dregist inn í stríðið ef Bandaríkin og önnur NATÓ-ríki halda áfram að senda vopn til Úkraínu. Rússar hafa einnig haft í hótunum um hugsanlega kjarnorkuvopnanotkun sína.

John Kirby, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, sagði í samtali við New York Times að hann „vilji ekki ræða í smáatriðum um upplýsingar af þessu tagi“. En hann sagði að Bandaríkin láti Úkraínu í té upplýsingar sem Úkraínumenn geti notað til að verja sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þið hljótið að vera í skemmtilegasta starfinu, að fá að færa fólki svona fréttir!“

„Þið hljótið að vera í skemmtilegasta starfinu, að fá að færa fólki svona fréttir!“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sex börn Karls Erons í losti eftir að hafa lesið dánartilkynningu Moggans eftir útför hans – „Við vorum ekkert látin vita“

Sex börn Karls Erons í losti eftir að hafa lesið dánartilkynningu Moggans eftir útför hans – „Við vorum ekkert látin vita“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump sagður hafa sent Epstein afmæliskort með teikningu af naktri konu – Forsetinn segir kortið falsað og hótar málsókn

Trump sagður hafa sent Epstein afmæliskort með teikningu af naktri konu – Forsetinn segir kortið falsað og hótar málsókn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hneykslismál skekur Tæland: Sögð hafa táldregið munka og kúgað síðan fé út úr þeim

Hneykslismál skekur Tæland: Sögð hafa táldregið munka og kúgað síðan fé út úr þeim