Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Benedikt Gunnari Ófeigssyni, sérfræðingi á sviði jarðskorpuhreyfinga hjá Veðurstofunni, að hér virðist vera um hraða þenslu að ræða.
„Þetta er virk eldstöð en hún hefur verið kannski frekar róleg undanfarið. Þannig að það var tímaspursmál hvenær þetta færi í gang aftur,“ er haft eftir honum.
GPS-stöð, sem er staðsett inni í öskjunni, sýnir landrisið glögglega og að auki koma gervihnattarmyndir að gagni við að staðsetja miðju landrissins betur en þær eru teknar á nokkurra daga fresti.
„Þannig getum við fylgst með færslum upp á sentimetra, með því að bera nýjustu myndirnar saman við fyrri myndir. Þær sýna sambærilegt ris á við GPS-stöðina,“ er haft eftir Benedikt.
Askja gaus síðast 1961 og landris mældist síðast við eldstöðina 1970-1972.